Fréttir
Útboð
	<description>Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í tæmingu rotþróa í Borgarbyggð 2013 – 2017.
Verkið felst í hreinsun rotþróa við lögbýli og aðra staði í sveitarfélaginu og flutning á seyru til förgunar. Heildarfjöldi rotþróa sem hreinsa skal á samningstíma er um 1.600 stk. Verktaki skal einnig staðsetja allar rotþrær með GPS.
Útboðsgögn verða til afhendingar í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi og hjá EFLU verkfræðistofu, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík frá og með 18. júní 2013 gegn skráningu á samskiptaaðila bjóðanda í útboði. 
Tilboð verða opnuð 10. júlí 2013 ‚ kl. 11:00, í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.</description>
Íbúafundur um þjóðlendumál
	<description>Borgarbyggð boðar til íbúafundar um þjóðlendumál í félagsheimilinu Brún mánudagskvöldið 24. Júní n.k.  Fundurinn hefst kl.20.30.
Á fundinum verður farið yfir þá vinnu sem unnin hefur verið á vegum Búnaðarsamtaka Vesturlands og Borgarbyggðar vegna væntanlegra krafna ríkisins um þjóðlendur í Borgarbyggð og hvernig rétt sé að halda á málum þegar kröfur ríkisins koma fram.
Allir velkomnir</description>
17. júní
	<description>Hátíðarhöld í tilefni þjóðhátíðardagsins verða með hefðbundnum hætti víðsvegar um sveitarfélagið:
Brautartunga í Lundarreykjadal
Ungmennafélagið Dagrenning sér um dagskrá sem hefst kl.14.00.
Logaland í Reykholtsdal 
Ungmennafélag Reykdæla stendur fyrir hátíðahöldum í Reykholtsdal með hefðbundnum hætti. Riðið til messu í Reykholti árdegis. Hangikjötsveisla og skemmtidagskrá í Logalandi kl. 13.00. Karamelluflugvélin ógurlega mun gera árás á hátíðargesti.
Hvanneyri
Ungmennafélagið Íslendingur verður með skemmtidagskrá og þjóðhátíðargrill. Lagt verður af stað frá Sverrisvelli að Skjólbeltum kl.11.00.
Lindartunga
Ungmennafélagið Eldborg og Kvenfélagið Björk verða með leiki og veitingar.  
Borgarnes
Hátíðarhöld á vegum Borgarbyggðar fara fram í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. Lífleg og skemmtileg dagskrá allan daginn. Dagskrána má sjá hér.</description>
Menntaskóli Borgarfjarðar fær gönguleiðakort
	<description>Páll Brynjarsson sveitarstjóri og Inga Vildís Bjarnadóttir forvarnarfulltrúi afhentu Menntaskóla Borgarfjarðar kort með gönguleiðum í nágreni skólans. 
Kortið er framlag Borgarbyggðar til verkefnisins Heilsueflandi framhaldsskóli – hreyfing.</description>
Laus störf í Grunnskóla Borgarfjarðar
	<description>Grunnskóla Borgarfjarðar vantar tvo starfsmenn í Skólalsel Hvanneyrardeildar næsta skólaár. Um er að ræða hlutastörf.
Mikilvægt er að starfsmenn hafi áhuga og gaman að því að vinna með börnum.</description>
Laus störf á Hnoðrabóli
	<description>Lausar eru til umsóknar stöður leiðbeinenda við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal.  Ráðið verður í stöðurnar tímabundið og er ráðningatímarbilið frá 8. ágúst 2013 til sumarlokunar 2014. Um er að ræða 100% og 40% stöðu.</description>
Klettaborg fær styrk úr Lýðheilsusjóði
	<description>Stjórn Lýðheilsusjóðs hefur úthlutað styrkjum úr Lýðheilsusjóði fyrir árið 2013. 
Leikskólinn Klettaborg fékk kr. 800.000,- í styrk til verkefnisins  „Heilsueflandi leikskóli“
Klettaborg er tilraunaleikskóli fyrir verkefnið Heilsueflandi leikskóli sem nú er unnið að hjá Embætti landlæknis, byrjað var að vinna að verkefninu í Klettaborg haustið 2011 um leið og innleiðing hófst í Grunnskólanum í Borgarnesi.</description>
Vinnuskólinn og sumarstarf barna
	<description>Frá Sissa í Vinnuskólanum: 
Vinnuskóli Biorgarbyggðar tók til starfa mánudaginn 10. júni. Einungis 45 unglingar mættu til vinnu en það telst ansi lítið miðað við síðastliðin ár. Tómstundaskóli (leikjanámskeið og kofabyggð) hófst einnig fyrir yngsta stig og miðstig og þar er aftur á móti mjög góð þáttaka. Borgarbyggð hefur verið með leikjanámskeið undanfarin ár fyrir krakka í 5.–7. bekk og síðustu tvö sumur hefur verið boðið upp á  sumarfjör fyir krakka í 1.–4. bekk.</description>
Hross í óskilum
	<description>Í óskilum er ómörkuð og ómerkt, mósótt meri, tveggja til þriggja vetra gömul. 
Hún kom fyrir í Stafholtsey í vor en er nú á Kópareykjum. 
Þeir sem telja sig kannast við merina eru beðnir að hafa samband við Jón  Eyjólfsson á Kópareykjum í síma 893-6538</description>
Íbúakynning um fyrirhugaðar endurbætur á Skallagrímsgarði
	<description>Boðið er til íbúakynningar í Skallagrímsgarði 27. júní kl. 16. Þar mun Samson B. Harðarson kynna tillögu sína að endurbótum á garðinum. Vinna við þær endurbætur mun hefjast í ár og ráðgert er að þeim muni ljúka árið 2018.</description>
Dagur hinna villtu blóma í Einkunnum
	<description>Dagur hinna villtu blóma verður sunnudaginn 16. júní. Þann dag gefst fólki víðs vegar um landið kostur á að fara í tveggja tíma gönguferð um nágrenni sitt án endurgjalds, og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa.
Í tilefni dagsins verður farið í skoðunarferð í fólkvanginum Einkunnum. Mæting er kl. 10:00 við bílastæðin við Álatjörn í fólkvanginum Einkunnum. Boðið verður upp á skógarkaffi að göngu lokinni. Leiðsögn: Guðrún Bjarnadóttir og Hilmar Már Arason.</description>
Rúlluplastsöfnun Borgarbyggðar - Önnur söfnun ársins er hafin
	<description>Önnur rúlluplastsöfnun ársins hófst í dag 10. júní og kemur hún til með að standa til 20. júní. Sjá hér auglýsingu sem send var í upphafi árs og einnig fyrir hálfum mánuði síðan.</description>
Græn svæði í fóstur
	<description>Árið 2011 var íbúum og samtökum í fyrsta skipti boðið að taka opið svæði, í umsjón eða eigu sveitarfélagsins, í fóstur. Nú hefur verið gengið frá 8 samningum við íbúa og það eru 9 samningar til viðbótar í
vinnslu. Heildarflatarmál þeirra svæða sem búið er að gera samning um er nú komið í 35.222 fermetra. Sjá hér auglýsingu sem birtist nýlega. Sjá hér samningseyðublað.</description>
Tilkynning til íbúa Borgarness
	<description>Borgarbyggð hefur fengið Stefán Inga Ólafsson til að vinna fyrir sig máf við Dílatanga í Borgarnesi í júní 2013 til verndar andfuglum á svæðinu.</description>
Grunnskólakennarar takið eftir!
	<description>Grunnskólinn í Borgarnesi leitar að grunnskólakennurum frá upphafi næsta skólaárs til að koma til liðs við öflugan starfsmannahóp sem fyrir er. Skólinn vinnur eftir stefnunni Uppeldi til ábyrgðar og er Grænfánaskóli síðan 2006.</description>
Umhverfisverkefni sumarið 2013
	<description>Hér til hliðar vinstra megin á heimasíðunni undir ,,þjónusta við íbúa" er búið að bæta við undirsíðu sem heitir ,,Umhverfisverkefni sumarið 2013". Þar undir eru kynnt þau umhverfisverkefni sem íbúum er boðið að taka þátt í  sumarið 2013. Það eiga eftir að bætast við verkefni á þessa síðu og verða þau auglýst sérstaklega hér í frétt á heimsíðunni þegar þau verða sett inn. 
Sjá hér auglýsingu sem birtast mun í  ,,Íbúanum" núna í vikunni.</description>
Árshátíð Hvanneyrardeildar
	<description>Árshátíð Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri verður haldin á morgun, fimmtudaginn 30. maí kl. 16.30 í skjólbeltunum á Hvanneyri. Þar mun 1.-2. bekkur sýna leikritið Risinn og börnin í þorpinu og 3.-4. bekkur sýnir leikrit um Egilssögu.</description>
Opið hús á Hnoðrabóli
	<description>Í dag, miðvikudaginn 29. maí  ætla börnin á Hnoðrabóli í Reykholtsdal að bjóða öllum velunnurum skólans á opið hús og myndlistarsýningu frá kl. 14.00 til kl. 15.45.  Gaman væri að sjá sem flesta foreldra, systkini, ömmur, afa, frænkur, frændur og aðra sveitunga sem hafa tök á því að líta inn og eiga góða stund með okkur og þiggja kaffiveitingar.   
Útskrift og fjör verður einnig fyrir hádegi í dag, þá útskrifar leikskólinn elstu börnin, veitir þeim viðurkenningu fyrir skemmtilega og góða samveru  með uppákomu og fjöri.
Starfsfólk Hnoðrabóls</description>
Ljúft og létt í Landnámssetri
	<description>Söngfjölskyldan, þau Theodóra, Ogleir Helgi og dætur, efna til tónleika í Landnámssetrinu í Borgarnesi næstkomandi fimmtudag, 30. maí kl. 21.00. Ingibjörg Þorsteinsdóttir leikur með á píanó.
Yfirskrift tónleikanna er "Ljúft og létt í Landnámssetri" og verður fjölbreytt dagskrá, þau flytja meðal annars dúett og tríó eftir Mozart, íslensk sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns og söngleikjalög.</description>
Heilsueflandi framhaldsskóli - gull til Menntaskólans
	<description>Menntaskóli Borgarfjarðar hefur hlotið tvenn gullverðlaun fyrir verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli á skólaárinu 2012 – 2013. Verðlaunin eru fyrir framúrskarandi árangur; í fyrsta lagi við að tryggja tækifæri nemenda og starfsfólks til hreyfingar og í öðru lagi fyrir aðgengi nemenda og starfsfólks að hollum mat.</description>