Fréttir
Ný símanúmer í Grunnskóla Borgarfjarðar
	<description>Grunnskóli Borgarfjarðar hefur nú fengið ný símanúmer. Aðalnúmer skólans er 430 1500 og þar fæst samband við allar deildir skólans. Símaskrá skólans má nálgast hér.</description>
Námskeið í olíumálun
	<description>Símenntunarmiðstöðin hyggst halda námskeið í olíumálun ef næg þátttaka fæst. Farið verður í undirstöðuatriði olíumálunar, litblöndun. Myndbyggingu, áferð og íblöndun. Unnið verður á pappír og striga. Pappír og strigi er innifalið í námskeiðsgjaldi en þátttakendur taka með sér olíuliti og pensla.
Kennt verður að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi, mánudaga kl. 19-21 frá 13. september til 25. október. Kennari er Áslaug Sigvaldsdóttir kennari og myndlistakona.
Einungis vantar tvo þátttakendur í viðbót til að unnt sé að halda námskeiðið og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig.</description>
Opnunartími leikskóla
	<description>Leikskólabörn í ráðhúsheimsókn á öskudaginnByggðarráð samþykkti á fundi sínum þann 2. september síðastliðinn að lengja daglegan opnunartíma leikskóla til kl. 16:30 frá og með 1. október næstkomandi.  Föstudagslokun vegna starfsmannafunda verður óbreytt út yfirstandandi ár en byggðarráð felur fræðslunefnd að skoða möguleika að breyttu fyrirkomulagi frá og með árinu 2011.</description>
Byggðasafni færð rauðvínsflaska úr Pourquoi Pas?
	<description>Byggðasafni Borgarfjarðar hefur verið færð kærkomin gjöf. Um er að ræða aldraða rauðvínsflösku úr rannsóknaskipinu Pourquoi Pas? sem fórst við Mýrar í september 1936.  Það var Eysteinn Sveinbjörnsson sem færði safninu flöskuna, en hún hefur verið varðveitt hjá honum allar götur síðan skipið fannst á hafsbotni sumarið 1961, eða í tæplega hálfa öld. Ennfremur kom hann með blaðaúrklippur frá þeim tíma að skipið fannst og verða þær varðveittar í Héraðsskjalasafninu.</description>
Vetrarstarf að fara af stað
	<description>Nú er sá tími að vetrardagskrá í íþrótta- og æskulýðsmálum er kynnt bæði sem í boði er á vegum sveitarfélagsins og einnig hjá frjálsum félagasamtökum sem sinna sínu mikilvæga starfi.  
Á heimasíðu þessari undir íþróttir- og æskulýðsmál má sjá hvað er í boði auk þess sem heimasíður deilda eru með nánari upplýsingar um starf sitt og æfingatöflur.  Við hvetjum alla að vera með í starfinu í vetur og taka virkan þátt í gefandi frítímastarfi. Undir íþróttamiðstöðvum má sjá tilboð fyrir almenning og æfingatöflur fyrir börn og unglinga.  
Í sumar var ágætis aðsókn í allar laugar enda sumarið einstaklega gott og enn eitt metið var slegið í sundlauginni í Borgarnesi  þegar tæplega 25.000 gestir heimsóttu okkur í júlí sem er mikil bæting frá fyrra ári og skýrist aðallega á unglingalandsmótinu.  Eins var júní einnig metmánuður með um 11.000 gestum.  Sjá dagskrá vetrar hér.
ij</description>
Breyttur opnunartími á gámastöðinni í Borgarnesi
	<description>Opnunartími gámastöðvarinnar í Borgarnesi breyttist þann 1. september síðastliðinn.
Opnunartíminn verður framvegis frá kl. 14.00 – 18.00 alla daga nema sunnudaga og lögbundna frídaga.
Framkvæmdasvið</description>
Síðasta kvöldganga sumarsins
	<description>Ungmennasamband Borgarfjarðar hefur skipulagt sjö kvöldgöngur í sumar og hafa þær verið vel sóttar. Sjöunda og síðasta kvöldganga Ungmennasambandsins í sumar verður  í kvöld, fimmtudaginn 2. september. Gangan hefst kl. 19.30 og gengið verður upp Árdalsgil   
Mæting við Árdal. Göngustjóri verður Pétur Jónsson. 
Í tengslum við verkefnið Fjölskyldan á fjallið á eftir að fara tvær göngur til að ná í póstkassa og gestabækur upp á Varmalækjamúla og Þyril. Þær göngur verða auglýstar síðar.</description>
Endurvinnslutunnur
	<description>Frá og með 1. október verður sú breyting á sorphirðu að endurvinnslutunnur verða settar við öll hús í þéttbýli í Borgarbyggð. Þetta á því við um Borgarnes, Hvanneyri, Kleppjárnsreyki, Reykholt, Bæjarsveit, Varmaland og Bifröst. Þeim sem nú þegar eru með endurvinnslutunnur er bent á að þeir geta sagt þeim upp til viðkomandi fyrirtækis en nýju tunnurnar verða á vegum sveitarfélagsins.</description>
Íslenska Gámafélagið ehf. tekur við
	<description>Undanfarna daga hefur starfsfólk gámafyrirtækja verið að skipta út gámum á gámavöllum í Borgarbyggð. 
Eins og kunnugt er, var í kjölfar útboðs, samið við Íslenska Gámafélagið ehf. um sorphirðu í Borgarbyggð til næstu fimm ára. 
Íbúar eru beðnir að sýna þessum breytingum skilning en fljótlega má búast við að gámastöðvar verði fullbúnar að nýju. 
Um leið og við bjóðum Íslenska Gámafélagið velkomið til starfa í sveitarfélaginu, þökkum við Gámaþjónustu Vesturlands fyrir samstarfið á liðnum árum.
Framkvæmdasvið</description>
Fótboltamót á Hvanneyri
	<description>Ungmennafélagið Íslendingur heldur fótboltamót á Sverrisvelli á Hvanneyri næstkomandi laugardag 4. september. Mótið hefst kl. 11.00 og keppt verður í fimm aldursflokkum, 6 - 9 ára, 10 - 12 ára, 13 - 15 ára, 16 - 19 ára og 20 ára og eldri. Keppt verður í sjö manna bolta og liðin mega vera blönduð. Að keppni lokinni verða skemmtiatriði og mótsslit í skjólbeltunum á Hvanneyri. Grillið verður heitt og tilvalið að hafa með sér mat og drykk.</description>
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi
	<description>Vegna viðgerða á gólfefnum í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi verða gestir okkar og iðkendur að ganga inn í húsið að neðanvörðu þ.e. inn milliganginn niður með húsinu næstu þrjá daga. Beðið er velvirðingar á óþægindum þessum.
Spinning og þolfiminámskeið hefjast svo í næstu viku þ.e. 6. sept. en vatnsleikfimi og æfingar í þreksal eru þegar komið á fulla ferð með Írisi.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.</description>
Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð
	<description>Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010 – 2022
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum ásamt umhverfisskýrslu skv. 4. mgr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. 
Aðalskipulagstillagan og umhverfisskýrslan verða til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi frá 30. ágúst til 27. september 2010.  Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar sjá hér og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir.  Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eigi síðar en 11. október 2010.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
                                                                             Jökull Helgason
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar</description>
Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð og Skorradalshreppi
	<description>Niðurfelling svæðisskipulags sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017
Samvinnunefnd um svæðisskipulag sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar hefur samþykkt að fella úr gildi svæðisskipulag sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 vegna nýrra aðalskipulaga sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.
Niðurfellingartillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu Skorradalshrepps, Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri frá 30. ágúst til 27. september 2010.  Gögnin eru aðgengileg á heimasíðu Skorradalshrepps www.skorradalur.is , hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og þau má einnig nálgast hér.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir.  Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða skrifstofu Skorradalshrepps, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi eigi síðar en 11. október 2010.
Samvinnunefndin</description>
Auglýsing um svæðisskipulag Mýrasýslu
	<description>Niðurfelling svæðisskipulags Mýrasýslu 1998-2010
Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Mýrasýslu hefur samþykkt að fella úr gildi svæðisskipulag Mýrasýslu 1998-2010 vegna nýs aðalskipulags Borgarbyggðar 2010 – 2022.
Niðurfellingartillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi frá 30. ágúst til 27. september 2010.  Gögnin eru einnig aðgengileg hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og þau má nálgast hér  
                                                                             F.h. Samvinnunefndarinnar;
Jökull Helgason
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar</description>
Fundartími nefnda hjá Borgarbyggð
	<description>Fastanefndir Borgarbyggðar sem hafa reglulega fundartíma hafa nú ákveðið hvenær fundir þeirra fara fram.  
Byggðarráð
Byggðarráð fundar á fimmtudögum kl. 8.00 í ráðhúsi Borgarbyggðar. Formaður byggðarráðs er Björn Bjarki Þorsteinsson.
Borgarfjarðarstofa
Borgarfjarðarstofa fundar fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði kl. 16.30. Formaður Borgarfjarðarstofu er Jónína Erna Arnardóttir.
Velferðanefnd
Velferðanefnd fundar annan mánudag í hverjum mánuði kl. 15.00. Formaður velferðanefndar er Friðrik Aspelund.
Tómstundanefnd 
Tómstundanefnd fundar fyrsta mánudag í hverjum mánuði kl. 16.00. Formaður tómstundanefndar er Eiríkur Jónsson.
Fræðslunefnd
Fræðslunefnd fundar fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði kl. 10.00. Formaður fræðslunefndar er Björn Bjarki Þorsteinsson.
Landbúnaðarnefnd
Landbúnaðarnefnd mun funda fjórum sinnum á ári en hefur ekki ákveðinn fundartíma. Formaður landbúnaðarnefndar er Ingibjörg Daníelsdóttir. Næsti fundur nefndarinnar verður í nóvember.
Umhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd fundar annan mánudag í hverjum mánuði kl. 8.30. Formaður umhverfis- og skipulagsnefndar er Ragnar Frank Kristjánsson.
Sveitarstjórn
Sveitarstjórnarfundir eru einu sinni í mánuði, annan fimmtudag kl. 16.00. Forseti sveitarstjórnar er Ragnar Frank Kristjánsson
Aðrar nefndir hafa óreglulegan fundartíma sem sem oft ræðst af árstíðarbundnu hlutverki þeirra eða sérverkefnum. Fundir allra nefnda, byggðarráðs og sveitarstjórnar fara alla jafna fram í Ráðhúsi Borgarbyggðar.</description>
Réttardagar í Borgarbyggð
	<description>Frá Grímsstaðarétt haustið 2009Bændasamtök Íslands hafa birt lista yfir fjár- og stóðréttir haustið 2010 á vef sínum. Það er Ólafur Dýrmundsson ráðunautur sem hefur tekið listann saman. Heildarlistann yfir allar réttir á landinu má nálgast á vef Bændasamtakanna http://bondi.is/ 
Réttir í Borgarbyggð verða sem hér segir:
Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðahreppi sunnudaginn 5. sept.Fljótstungurétt í Hvítársíðu laugardaginn 11. sept.Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal miðvikudaginn 15. sept.Brekkurétt í Norðurárdal sunnudaginn 19. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit sunnudaginn 19. sept.Hítardalsrétt í Hítardal mánudaginn 20. sept.Grímsstaðarétt á Mýrum þriðjudaginn 21. sept.Mýrdalsrétt þriðjudaginn 21. sept.Svignaskarðsrétt mánudaginn 20. sept.Þverárrétt í Þverárhlíð mánudaginn 20. sept.</description>
Fundur vegna sölu Límtré Vírnets
	<description>Borgarbyggð og Atvinnuráðgjöf Vesturlands boða til opins fundar í Menntaskóla Borgarfjarðar á morgun, miðvikudaginn 25. ágúst kl. 17.00. Umræðuefnið er staða mála varðandi væntanlegt söluferli á Límtré Vírneti ehf.</description>
Úthlutun úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar
	<description>Ljóðaverðlaunum Guðmundar Böðvarssonar og Borgfirskum menningarverðlaunum verður úthlutað á samkomu í Snorrastofu í Reykholti sunnudaginn 5. september næstkomandi. Minningarsjóður Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda á Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurðardóttur konu hans veitir verðlaunin. Sjóðurinn var stofnaður árið 1974 og var fyrsta verkefni hans að reka hús þeirra hjóna á Kirkjubóli sem bústað fyrir skáld og listafólk. Aðilar sjóðsins eru Rithöfundasamband Íslands, Ungmennasamband Borgarfjarðar, Samband borgfirskra kvenna, Búnaðarsamtök Vesturlands og afkomendur þeirra hjóna. Síðan 1994 hefur sjóðurinn veitt áðurnefnd verðlaun, sem eru annars vegar Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar, sem veita skal íslensku ljóðskáldi og hins vegar menningarverðlaun sem veita skal Borgfirðingi, stofnun eða einstaklingi, fyrir sérstætt framlag til lista og menningarmála í héraði. Þetta er sjöunda úthlutun úr sjóðnum.
Samkoman hefst stundvíslega kl. 17.00 og er öllum opin.
Eftirtaldir aðilar hafa hingað til hlotið verðlaun sjóðsins:</description>
Góð þátttaka í sumarlestri Safnahúss
	<description>Hluti gesta á uppskeruhátíðUppskeruhátíð sumarlestrarátaks Héraðsbókasafns Borgarfjarðar var haldin fimmtudaginn 19. ágúst síðastliðinn og var mikið fjör þegar krakkarnir mættu í Safnahúsið í Borgarnesi. Farið var í leiki og þrautir leystar undir styrkri stjórn Sævars Inga Jónssonar héraðsbókavarðar og Eddu Bergsveinsdóttur sumarstarfsmanns safnanna. Meðal annars þurftu foreldrar og börn að kljást við þá þraut að stökkva jafnfætis yfir sauðarlegg,  en slíkt hefur áður verið gert í Þjóðminjasafninu við góðar undirtektir. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur, en alls lásu  47 krakkar 305 bækur þetta sumar sem telst frábær frammistaða. Þetta er met þátttaka í sumarlestrarverkefninu, en þetta er í þriðja sinn sem Safnahús stendur fyrir slíku hvatningarátaki í lestri að sumri til. (safnahus.is)</description>
Könnun á aðgengi fatlaðra
	<description>Inga Björk Bjarnadóttir sem unnið hefur hjá Borgarbyggð í sumar við skráningu gæludýra var einnig ráðin til að kanna aðgengi fatlaðra hjá stofnunum Borgarbyggðar og skila skýrslu um niðurstöðurnar. Miðvikudaginn 18. ágúst hafði Inga Björk skipulagt ,,hjólastólarallý“ þar sem hún bauð Páli S. Brynjarssyni sveitarstjóra og Jökli Helgasyni forstöðumanni framkvæmdasviðs að ferðast um á hjólastólum á nokkra staði í Borgarnesi. Með í för voru Haukur Valsson hjá Slökkviliði Borgarbyggðar sem keyrði þjónustubílinn og Björg Gunnarsdóttir umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sem skrásetti það sem fyrir augu bar og tók myndir, en nokkrar þeirra fylgja hér með fréttinni.</description>