Fréttir
Vígsla Faxaborgar
	<description>Unga kynslóðin sýndi listir sínar.Síðastliðinn sunnudag var reiðhöllin í Borgarnesi formlega tekin í notkun og henni gefið nafnið Faxaborg. Gestir voru fjölmargir en áætlað er að vel á fjórða hundrað manns hafi komið í höllina. Ingi Tryggvason setti hátíðina og stjórnaði henni. Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason flutti húsblessun og Kristján Gíslason fór yfir byggingarsöguna. Meðal gesta sem ávörpuðu samkomuna og fluttu hestamönnum góðar óskir voru þeir Páll Brynjarsson sveitarstjóri, Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamanna, Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra og Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra. Hestamannafélagið Snæfellingur gaf peningaupphæð til tækjakaupa. Í hléi gæddu gestir sér á kjötsúpu í boði Gæðakokka. Börn og unglingar úr Faxa og Skugga sýndu færni sína á hestum, boðið var upp á töltsýningu og sýndir tveir stóðhestar þeir Sólon frá Skáney og Glymur frá Innri - Skeljabrekku. Allar þessar sýningar tókust vel og glöddu viðstadda. Til hamingju hestamenn!</description>
Eftirlitsnefndin aðhefst ekki frekar í málefnum Borgarbyggðar að svo stöddu
	<description>Undanfarna mánuði hefur Borgarbyggð verið meðal þeirra sveitarfélaga sem hafa verið til sérstakrar skoðunar hjá Eftirlitsnefnd sveitarfélaga vegna rekstrarniðurstöðu ársins 2008 og skuldsetningar. 
Frá árslokum 2008 hefur verið unnið markvisst að því að draga úr rekstarkostnaði sveitarfélagsins og lækka skuldir. Þessar aðgerðir hafa skilað árangri og áfram er unnið að endurfjármögnun mennta- og menningarhússins í Borgarnesi. 
Nýverið skilað Borgarbyggð áætlunum um rekstur sveitarfélagsins til eftirlitsnefndar, en í þeim er gert ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu á rekstri sveitarfélagsins á næstu árum. Þá var lögð fyrir nefndina greinargerð um endurskipulagningu á rekstri sveitarfélagsins. 
Í kjölfar þessa ákvað Eftirlitsnefnd sveitarfélaga að aðhafast ekki frekar í málefnum Borgarbyggðar að svo stöddu. 
Þrátt fyrir fækkun íbúa, tekjufall og aukna greiðslubyrgði lána eru góð batamerki í rekstri Borgarbyggðar sé litið til næstu ára. Miðað við 3 ára áætlun sveitarfélagsins eru horfur þokkalegar með rekstur sveitarfélagsins, en þó má vissulega lítið út af bregða og eru sveitarstjórn og stjórnendur meðvitaðir um mikilvægi þess að eftirlit sé stöðugt þannig að hægt sé að grípa til aðgerða ef þurfa þykir. 
Smellið hér til að sjá greinargerðina.</description>
Þjóðaratkvæðagreiðsla - kjördeildir í Borgarbyggð
	<description>Við þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 06. mars n.k. eru 2.543 kjósendur á kjörskrá í Borgarbyggð.  Þeim er skipt í sex kjördeildir eftir svæðum innan sveitarfélagsins.  Þó er rétt að benda á að kjósendur á kjörskrá, sem eru búsettir erlendis, eiga að kjósa í Borgarneskjördeild.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. 
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Grunnskólanum í Borgarnesi.  Sími hennar er 845-8818. 
Skipan í kjördeildir í Borgarbyggð er sem hér segir:</description>
Safnahús Borgarfjarðar - sumarstarf
	<description>Safnahús Borgarfjarðar auglýsir eftir starfsmanni í sumarafleysingar. Um er að ræða störf á bókasafni og við sýningarvörslu, þrif og fleira. Viðkomandi þarf að vera samviskusamur og  hafa góða og vandaða framkomu ásamt ríkri þjónustulund. Mikilvægt er einnig að eiga auðvelt með samskipti og geta veitt sýningaleiðsögn bæði á ensku og íslensku.  Önnur tungumál og almennur áhugi á bókmenntum og sögu er kostur. Helstu tölvuforrit: Outlook og Word (Exel).
Umsóknir óskast sendar á gudrunj@borgarbyggd.is fyrir 17. mars n.k.</description>
Gullna hliðið í Lyngbrekku
	<description>Kerlingin og Lykla-Pétur mynd_OHRLeikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi frumsýnir Gullna hliðið í félagsheimilinu Lyngbrekku föstudaginn 5. mars nk. kl. 20:30. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.
Meira en 30 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Gullna hliðið er eftir eitt af öndvegisskáldum Íslendinga, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og hans þekktasta leikrit, enda hefur Gullna hliðið unnið sér verðskuldaðan sess meðal sígildra íslenskra leikrita. Næstu sýningar verða sunnudaginn 7. mars, fimmtudaginn 11. mars, föstudaginn 12. mars og laugardaginn 13. mars. Allar sýningar hefjast kl. 20:30. Miðapantanir eru í síma 848 9043.</description>
Kjörskrá í Borgarbyggð
	<description>Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram á að fara 6. mars n.k. liggur fram á skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá og með föstudeginum 26. febrúar 2010 á afgreiðslutíma skrifstofunnar, fram að kjördegi. 
Athugasemdir við kjörskrána skulu berast skrifstofustjóra Borgarbyggðar fyrir 6. mars 2010.</description>
Frá Tónlistarfélagi Borgarfjarðar
	<description>Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík sýnir óperuna Don Djammstaff í samvinnu við Íslensku óperuna.  Óperan er samsett úr 17 atriðum úr 14 óperum eftir 9 tónskáld og sungin á 4 tungumálum. Meðal höfunda má nefna Mozart, Verdi, Puccini, Wagner, Handel og Tchaikovsky. Söguþráðurinn snýst um ævintýri vampírunnar Don Djammstaff, sem er yfir sig ástfanginn af mennskri konu, Paminu,  og setur allt í uppnám til að ná ástum hennar.  Inn í framvinduna fléttast hefndir kvenna og vald örlaganna. Tónleikarnir verða í Logalandi í Reykholtsdal, laugardaginn 6. mars næstkomandi og hefjast klukkan fjögur.</description>
Söngkeppni MB og Mímis
	<description>Söngkeppni MB og Mímis sem vera átti síðastliðinn fimmtudag verður haldin í Menntaskóla Borgarfjarðar í kvöld, þriðjudaginn 2. mars kl. 20.00. Þar verður meðal annars keppt um hver verður fulltrúi í Söngkeppni framhaldsskólanna. Fleiri skemmtiatriði verða einnig í boði því unglingar úr félagsmiðstöðvum stíga á svið með söngatriði. Bein útsending verður frá söngkeppni MB og Mímis á vef Menntaskóla Borgarfjarðar www.menntaborg.is</description>
Drengjaflokkur Bikarmeistarar KKÍ um helgina
	<description>Sameiginlegt lið Skallagríms og Snæfells í drengjaflokki varð bikarmeistari um helgina eftir frábæran úrslitaleik við sameiginlegt lið Hamars og Þór Þ. Lokatölur leiksins 78-80 Skallagrím/Snæfelli í vil.  
Það er stutt síðan bikarmeistaratitill kom í Hólminn en meistaraflokkur Snæfells náði þeim áfanga fyrir stuttu síðan en það er lengra síðan bikarmeistaratitill kom í Borgarnes en það gerðist árið 1980 en þá varð 2. flokkur kvenna hjá Skallagrími bikarmeistarar.
Innilega til hamingju drengir í Skallagrím/Snæfell með þennan frábæra árangur ykkar og þetta góða samstarf ykkar. 
Myndir úr leiknum má sjá inn á heimasíðu KKÍ.is  og Karfan.is 
Strákarnir keppa næst hér í Borgarnesi á miðvikudaginn og er fólk hvatt til að fjölmenna þá og hylla bikarmeistarana sérstaklega á undan leik þeirra við Grindavík sem hefst kl. 20.00
Mynd: Jón Björn Ólafsson.</description>
Æfingabúðir í Noregi
	<description>Hestamannafélagið Faxi hefur fengið boð frá hestamannfélaginu Faxa í Noregi um að senda 3 ungmenni 13-17 ára til Noregs um páskana (29.-31.mars) í æfingarbúðir. Viðkomandi þurfa að borga flugfar en norðmenn bjóða fría kennslu og uppihald. Krökkunum verða útveguð hross. Boðið verður upp á kennslu, keppni og kvöldskemmtun. Nánari upplýsingar veitir Gro í síma 846 0169 eða á netfanginu gro@vesturland.is  Umsóknarfrestur til 7. mars.</description>
Dagur tónlistarskólanna 2010
	<description>Tónleikarnir sem vera áttu síðastliðinn fimmtudag en frestað var vegna veðurs verða í sal Tónlistarskóla Borgarfjarðar í dag kl. 18:00.
Tónleikarnir eru í tilefni af Degi tónlistarskólanna á Íslandi sem er síðasti laugardagur í febrúar ár hvert. Flestir skólar á landinu eru með dagskrá og kynna sína skóla í tilefni af þessum degi.
Eins og fyrr segir hefjast tónleikarnir í dag kl. 18:00 og munu nemendur flytja fjölbreytta dagskrá; einleikur, samleikur, söngur og einnig bjóða nemendur upp á kaffimeðlæti. 
Tónleikarnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Meðfylgjandi mynd tók Theodóra Þorsteinsdóttir af ungum gestum Tónlistarskólans að prófa hljóðfæri.</description>
Söngkeppni í MB frestað
	<description>Sveinn Arnar vann í fyrraSöngkeppni og tónlistarveisla sem Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar og Ungmennahúsið Mímir setja saman upp og vera átti í kvöld í MB hefur verið frestað vegna veðurs.  
Til stendur að halda keppnina þriðjudaginn 23. feb. kl. 20.00 á sama stað og eru allir hvattir til að mæta þá.
Stjórnin.</description>
Tónleikum frestað
	<description>-->Tónleikunum sem áttu að vera í dag í Tónlistarskóla Borgarfjarðar í tilefni af Degi tónlistarskólanna er frestað til mánudagsins 1. mars.</description>
Brák frestar fundi
	<description>Aðalfundi Björgunarsveitarinnar Brákar sem vera átti þann 3. mars næstkomandi hefur verið frestað af óviðráðanlegum ástæðum. Fundurinn verður auglýstur aftur með minnst 7 daga fyrirvara bæði með auglýsingum um bæinn og boðaður út á félagsmenn eins og lög gera ráð fyrir.</description>
Ístölt á sunnudaginn
	<description>Hestamannafélagið Faxi heldur opið ístölt sunnudaginn 28. febrúar  kl. 13.00 á Vatnshamravatni. 
Keppt verður í þremur flokkum:
17 ára og yngri (hægt tölt og fegurðartölt)
2. flokkur (hægt tölt og fegurðartölt)
1. flokkur (hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt) Skráning á staðnum til kl. 12:45.</description>
Fuglasýning í Safnahúsi Borgarfjarðar
	<description>mynd_GJ
Opnuð hefur verið sýning á uppstoppuðum fuglum í Safnahúsinu  í Borgarnesi. Um er að ræða uppstillingu vegna flokkunarvinnu við Náttúrugripasafn Borgarfjarðar  og verður sýningin opin fram að páskum alla virka daga frá kl. 13.00 - 16.00 eða á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi. Á staðnum eru fræðibækur um fugla svo hægt er að spreyta sig á að greina tegundirnar. Við þetta má bæta að Safnahús er staðsett við ströndina þar sem fylgjast má með lífríki náttúrunnar á leirunum út um glugga hússins. Það er skemmtilegur viðauki við sýninguna á þessu merka fuglasafni.  
Náttúrugripasafn Borgarfjarðar var stofnað sem deild úr Byggðasafni Borgarfjarðar 1972. Jón M. Guðmundsson hefur stoppað upp mikið af dýrum fyrir safnið og gripir hafa verið keyptir inn eftir föngum í gegn um árin. Þar er einnig að finna mikið safn Kristjáns Geirmundssonar hamskera. Gripirnir í safninu þykja einkar vandaðir og úrvalið mikið.</description>
Gullna hliðið hjá Skallagrími
	<description>Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms er þessa dagana að æfa  leikritið Gullna Hliðið eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og er áætluð frumsýning þann 5. mars næstkomandi.Það eru fjölmargir sem taka þátt í sýningunni á einn eða annan hátt, leikarar eru um 20 talsins og fjölmargir aðrir taka þátt í uppsetningunni. Leikstjóri  er Rúnar Guðbrandsson en hann er leikdeildinni að góðu kunnur enda hefur hann leikstýrt hópnum tvisvar áður.Æfingar standa yfir þessa dagana í félagsheimilinu Lyngbrekku í Borgarbyggð.</description>
Matjurtagarðar til leigu
	<description>Íbúum Borgarbyggðar gefst kostur á að taka á leigu matjurtagarða til að rækta sitt eigið grænmeti í sumar. Matjurtagarðarnir eru í landi Gróðrarstöðvarinnar Gleymérei í Borgarnesi og við gömlu loðdýrahúsin á Hvanneyri. 
Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér matjurtagarð í Borgarnesi eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Björgu Gunnarsdóttur, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða með því að senda póst á netfangið bjorg@borgarbyggd.is 
Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér matjurtagarð á Hvanneyri eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Kára Aðalsteinsson hjá Landbúnaðarháskóla Íslands í síma 433-5000 eða með því að senda póst á netfangið kari@lbhi.is
Nánari upplýsingar hér.</description>
Samkeppni um nafn á reiðhöllina
	<description>Ákveðið hefur verið að formleg vígsla Reiðhallarinnar við Vindás í Borgarnesi fari fram sunnudaginn 7. mars næstkomandi. Í aðdraganda vígslunnar hefur einnig verið ákveðið að fram fari samkeppni um nafn á húsið. Nafnanefndin er skipuð þeim Kristjáni Gíslasyni formanni, Sigurði Oddi Ragnarssyni og Magnúsi Magnússyni. Verðlaun verða veitt fyrir tillögu að nafni sem valið verður. Ef fleiri en ein tillaga berst um sama nafnið, verður dregið um vinningshafa. Hér með eru íbúar á svæðinu, hestamenn og Vestlendingar nær og fjær hvattir til að senda inn tillögur að nafni. Þær skulu annað hvort vera póstlagðar í lokuðu umslagi á formann dómnefndar: Kristján Gíslason, Súlukletti 3, 310 Borgarnesi eða sendar á tölvupósti á: kristgis@grunnborg.is (gott að merkja í efnislínu “Tillaga að nafni.”) Tillögur þurfa að hafa borist til formanns nafnanefndar fyrir nónbil þriðjudaginn 2. mars 2010.
-fréttatilkynning</description>
Söngvakeppni
	<description>Nú vinna ungmennin í Mími ungmennahúsi og nemendafélagi menntaskólans sameiginlega að undirbúningi söngkeppni/hátíðar sem fram fer næsta fimmtudag í sal menningarhússins.  Stífar æfingar standa yfir í nýja hljómsveitaræfingahúsnæðinu í ungmennahúsinu.  Í síðustu viku var lokið við að hljóðeinangra aðstöðuna þar með sérstökum hljóðgildrum og tókst frábærlega. Í viðbót við tækjakostinn sem þau hafa  þegar safnað sér keypti húsráð ungmennahúss  glænýjan bassamagnara í síðustu viku sem nú kemur sér vel að hafa en ungmennin verða með hljómsveit sem leikur undir öll lög í keppninni þannig að þetta stefnir í frábæra hátíð hjá þeim á fimmtudag.  Fleiri skemmtiatriði verða flutt en þau sem keppa um sæti um að komast í Söngkeppni framhaldsskólans , því unglingar úr félagsmiðstöðvum stíga einnig á svið með söngatriði og verið er að taka upp vídeóklippur af keppendum til að sýna jafnhliða.  Ekkert verður til sparað í tæknimálum og frítt inn til að fá sem flesta til að sjá hvað ungmennin okkar eru að gera í starfi sínu.
Samkoman verður auk þess hljóðrituð og mynduð „live“ eins og það er kallað með útgáfu geisladisks í huga.
Sjá viðhengi - Allir velkomnir.
IJ</description>