Fréttir
Umsækjendur um starf skipulags- og byggingarfulltrúa
	<description>Nýlega var auglýst eftir umsóknum um starf skipulags- og byggingarfulltrúa hjá Borgarbyggð.  
Eftirtalin sóttu um starfið: 
Berglind Björg Sigvaldadóttir, Einar Magnús Einarsson, Guðjón Þór Ragnarsson, Gunnar Sigurgeir Ragnarsson, Ingvar Helgi Ómarsson, Jóhann Víðir Númason, Kristinn Lúðvik Aðalbjörnsson, Lulu Munk Andersen, Magnús Þórðarson, Ólafur Þ. Stefánsson, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, Ómar Örn Kristófersson, Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, Sigurður Friðgeir Friðriksson, Sveinn Rúnar Traustason, Tryggvi Tryggvason, Ulla Rolfsigne Pedersen og Örn Arnarson. 
Verið er að vinna úr umsóknunum og verður hluti umsækjenda boðaður í viðtal á næstu dögum.</description>
Vortónleikar menntaskólakórsins
	<description>Vortónleikar kórs Menntaskóla Borgarfjarðar verða í Borgarneskirkju í kvöld, miðvikudaginn 8. maí og hefjast kl. 20.30. Kórsöngur, einsöngur og hljóðfæraleikur. Enginn aðgangseyrir en kórfélagar taka glaðir móti frjálsum framlögum. 
Allir velkomnir.</description>
Menningarsjóður Borgarbyggðar
	<description>Úthlutað hefur verið úr Menningarsjóði Borgarbyggðar.  Við skoðun á umsóknum var lögð áhersla á  grasrótarstarf í héraði. Umsóknir voru alls 19 talsins og hljóðuðu upp á tæplega 6 milljónir. Úthlutað var kr. 1.650.000 til 15 verkefna. Eftirtaldir hlutu styrk úr sjóðnum:</description>
Tónlistarskólinn - innritun og vortónleikar
	<description>Næstkomandi föstudag 10. maí og mánudaginn 13. maí verður innritun nýrra nemenda í Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Áhugasömum er bent á að hringja í síma 437 2330 eða senda tölvupóst á netfangið tskb@simnet.is. Þá er fólki einnig velkomið að líta við í skólanum þessa daga og fá að prófa hljóðfæri og spyrjast fyrir. 
Vortónleikar skólans verða sem hér segir:
Mánudagur 13. maí kl. 18.00 í Tónlistarskólanum Borgarnesi
Mánudagur 13. maí kl. 20.00 Logalandi Reykholtsdal
Þriðjudagur 14. maí kl. 18.00 í Tónlistarskólanum Borgarnesi
Þriðjudagur 14. maí kl. 20.00 í Logalandi Reykholtsdal
Miðvikudagur 15. maí kl. 18.00 í Tónlistarskólanum Borgarnesi
Miðvikudagur 15. maí kl. 20.00 í Tónlistarskólanum - Söngdeild
Fimmtudagur 16. maí kl. 18.00 í Tónlistarskólanum Borgarnesi
Nemendur flytja fjölbreytta tónlist og lýkur tónleikunum með því að nemendur taka við prófskírteinum.
Tónleikarnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.</description>
Framhaldsprófstónleikar í Borgarneskirkju
	<description>Heimir Klemenzson píanóleikari heldur framhaldsprófstónleika í Borgarneskirkju fimmtudaginn 9. maí kl. 20.00. Á tónleikunum flytur hann m.a, verk eftir Grieg, Chopin, Haydn og Katzaturian. Heimir, ásamt Quintet sínum, mun einnig flytja frumsamið verk. 
Heimir hefur stundað nám í Tónlistarskóla Borgarfjarðar frá árinu 1998 og hefur Jónína Erna Arnardóttir verið kennari hans lengst af. Tónleikarnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.</description>
Til foreldra barna 11 - 13 ára
	<description>Sumarstarf fyrir börn 11 – 13 ára
Starfið hefst 10. júní og verður í 4 vikur, þ.e. til 5. júlí. Starfsemin verður með þeim hætti að ráðinn verður 1 fullorðinn aðili til að halda utan um starfið en síðan mun hópur unglingar úr unglingavinnunni verða til aðstoðar. Boðið verður upp á smíðavöll, leikskólavinnu, vettvangsferðir, útivist og einnig eru hugmyndir um leshóp, skákhóp og leiklistarhóp en ekki alveg öruggt að af verði.
Vegna mikilla vinsælda leikskólavinnunnar í fyrra verður hún með öðru sniði í ár. Í fyrstu atrennu er boðið upp á ½ daginn í 1 viku á leikskóla, en ef mögulegt reynist gefst kostur á annarri viku.
Starfsemin verður til húsa í kjallara félagsmiðstöðvarinnar Óðals í Borgarnesi og er frá 9:00 – 12:00 og 13:00 –16:00. 
(Leikskólavinna þó frá 8:30 – 11:30 og 13:00 – 16:00).
Verð kr. 1.000 á viku.
Fylla þarf út meðfylgjandi skráningarblað og skila í Ráðhúsi Borgarbyggðar fyrir 21. maí n.k. Skráningarblaðið má senda rafrænt til hjordis@borgarbyggd.is.    
Nánari upplýsingar veitir Hjördís Hjartardóttir, s: 4337100, netfang: hjordis@borgarbyggd.is. 
Fjölskyldusvið Borgarbyggðar</description>
Til foreldra barna 7 - 10 ára
	<description>Sumarstarf fyrir börn 7-10 ára 
Starfið hefst þann 10. júní og verður í 4 vikur, þ.e. til 5. júlí. Starfsemin verður með þeim hætti að ráðinn verður 1 fullorðinn aðili til að halda utan um starfið en síðan mun hópur unglingar úr unglingavinnunni verða til aðstoðar. Um verður að ræða samveru úti og innileiki, vettvangsferðir o.fl.
Starfsemin fer fram í félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi og er frá kl. 9:00 að morgni til kl. 16:00. Fyrsta daginn 10. júní hefst starfið kl. 13:00. Verð er kr. 2.500 á viku. 
Fjölskyldusvið Borgarbyggðar</description>
Fjölskylduskemmtun Grunnskólans í Borgarnesi
	<description>Stjórn foreldrafélags Grunnskólans í Borgarnesi heldur fjölskylduskemmtun á lóð grunnskólans, þriðjudaginn 7. maí kl. 17.00-19.00. Í boði verður grill og leikir. Hvetjum foreldra að mæta með börnum sínum og eiga góða stund saman.</description>
Einþáttungahátið í Logalandi
	<description>Í tengslum við aðalfund Bandalag íslenskra leikfélaga um næstu helgi verður haldin einþáttungahátíð í félagsheimilinu Logalandi, föstudaginn 3. maí kl. 20.30. Þar munu fjögur leikfélög sýna fimm einþáttunga, ýmist frumsamda eða eftir erlenda höfunda. Leikfélögin sem sýna eru Hugleikur, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar og Leikfélag Ölfuss. Að sýningum loknum mun Kjartan Ragnarsson, leikstjóri og leikskáld, fjalla um sýningarnar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Verkin sem sýnd verða eru:</description>
Óskað er eftir stuðningsfulltrúa á starfsbraut MB
	<description>Menntaskóli Borgarfjarðar óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 70% starf á starfsbraut skólaárið 2013 til 2014.
Starfið felst í að aðstoða nemanda með fötlun við nám og athafnir daglegs lífs. Viðkomandi þarf að vera karlkyns og geta hafið störf 20. ágúst nk.
Hæfniskröfur: Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.
Nánari upplýsingar gefur Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari, kolfinna@menntaborg.is eða í síma 433 7701. Umsóknarfrestur er til 31. maí og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá til Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54, 310 Borgarnes eða á netfangið kolfinna@menntaborg.is</description>
Fjórar valkyrjur keppa í ræðukeppni í Borgarnesi
	<description>Fréttatilkynning:
Það verður fjöldi blómarósa og nokkrir herramenn, sem munu setja svip sinn á Borgarnes, helgina 3. til 5. maí, því að þá halda POWERtalk félagar þar sitt árlega landsþing á Hótel Borgarnesi.
POWERtalk eru alþjóðleg þjálfunarsamtök sem þjálfa fólk í að koma fram og koma fyrir sig orði og þar er hægt  að hefja markvissa þjálfun í ræðumennsku, framkomu og fundarstjórn svo fátt eitt sé nefnt.</description>
Ný vatnsveita vígð í Reykholtsdal
	<description>Ný vatnsveita í Reykholtsdal var vígð s.l. miðvikudag.  Vatnsból veitunnar er í landi Steindórsstaða og er vatnið leitt þaðan í Reykholt og Kleppjárnsreyki.  Vatnsbólið gefur 9 sekl í dag  og með minniháttar breytingum getur vatnsbólið gefið meira af sér ef vöxtur verður í byggð eða atvinnustarfsemi á svæðinu.  Kostnaður við gerð veitunnar var um 70 milljónir.  Orkuveita Reykjavíkur er eigandi veitunnar, en fyrirtækið tók yfir reksturinn árið 2006.
Það er von Orkuveitunar og Borgarbyggðar að nýja veitan muni tryggja íbúum í Reykholtsdal gnótt af góðu vatni öllum til hagsbóta, auk þess sem góða vatnsveita skapar ýmsa möguleika fyrir frekari uppbyggingu til framtíðar.</description>
Skipan í kjördeildir í Borgarbyggð
	<description>Við alþingiskosningar laugardaginn 27. apríl 2013 
er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:</description>
Afkoma Borgarbyggðar jákvæð á árinu 2012 - sveitarfélagið greiðir niður skuldir
	<description>Rekstur Borgarbyggðar gekk mun betur á árinu 2012 en gert hafði verið ráð fyrir, sem skýrist m.a. af því að skatttekjur voru meiri en áætlað var og fjármagnskostnaður reyndist nokkru minni en áætlun gerði ráð fyrir vegna endurútreiknings á vöxtum á láni í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arionbakna.  
Þetta kemur fram í ársreikningi Borgarbyggðar fyrir árið 2012 sem lagður var fram til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar 18. apríl s.l.. Síðari umræða sveitarstjórnar verður 16. maí nk. 
·         Heildartekjur sveitarsjóðs Borgarbyggðar og B-hluta fyrirtækja voru 2.758 milljónir króna á árinu 2012 en rekstrarútgjöld án fjármagnsliða voru 2.528 milljónir kr.  Framlegð sveitarfélagsins var því um 13%.  Fjármagnsgjöld voru alls 137 milljónir kr.  
·         Samantekin rekstrarniðurstaða Borgarbyggðar á árinu 2012 var jákvæð um 94 milljónir kr., sem er tæplega 59 milljónum kr. betri útkoma en endurskoðuð fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. 
·         Veltufé frá rekstri var 254 milljónir kr. eða 9,2% af rekstrartekjum, 30  milljónum kr. minna en áætlað var.  
·         Heildarskuldir og skuldbindingar voru 4.681 milljónir kr. Afborganir langtímalána námu 216  milljónum kr. og stóð veltufé frá rekstri undir þeim. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok var 1.522 milljónir kr. eða 25%.
·         Sveitarfélagið fjárfesti fyrir 344 milljónir kr. í varanlegum rekstrarfjármunum, þar af í hjúkrunarálmu við Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi fyrir  273 milljónir kr. Eignir sveitarfélagsins voru í árslok að andvirði 6.203 milljónir kr.  
·         Heildarskuldir Borgarbyggðar í hlutfalli af tekjum eru samkvæmt ársreikningi 170%.  Í fjármálareglum sveitarfélaga er gert ráð fyrir að draga megi frá þær skuldbindingar sem tryggðar eru með leigugreiðslum frá ríkissjóði sem og lífeyrisskuldbindingar sem koma til greiðslu eftir 16 ár.  Að teknu tilliti til þessa er skuldaviðmið Borgarbyggðar 136% í hlutfalli af tekjum. Viðmið sveitarstjórnarlaga er að skuldaviðmiðið sé undir 150%. 
Í ljósi þess að í árslok 2012 reyndist handbært fé sveitarfélagsins vera rúmar 251 milljónir, eða mun hærra en áætlað hafði verið hefur nú þegar verið gripið til þess ráðs að greiða af  lánum með óhagstæðum vaxtakjörum.  Alls hefur verið varið 105 milljónum til lækkunar skulda á árinu 2013 umfram það sem áætlað er.</description>
Gleðilegt sumar
	<description>Sveitarstjórn og starfsfólk Borgarbyggðar senda íbúum Borgarbyggðar og landsmönnum öllum  bestu sumarkveðjur!</description>
Borgfirskt landslag og málverk Tolla í Safnahúsi
	<description>Tolli og Bubbi  í Safnahúsi
Þorlákur  Morthens, betur þekktur sem Tolli, sýnir málverk og teikningar í Safnahúsi sumarið 2013 og verður sýning hans opnuð á sumardaginn fyrsta kl. 13.00.  Þar segir Tolli stuttlega frá verkum sínum og Bubbi Morthens flytur nokkur lög. Tolli verður síðan viðstaddur á sýningunni til kl. 16.00.
Sýningin stendur 25. apríl til 5. ágúst 2013.  Þess má geta að báðar fastasýningar Safnahúss verða opnar þennan dag, Börn í 100 ár og Ævintýri fuglanna.  Opið verður til 17.00.</description>
Vatnaskil í Reykholtsdal
	<description>Í dag, síðasta vetrardag, verður ný vatnsveita tekin í notkun í Reykholtsdal. Veitan er orðin langþráð þar sem þurrkarnir síðustu sumur hafa valdið vatnsskorti í dalnum. Skrúfað verður frá brunahana við slökkvistöðina í Reykholti klukkan 16 á morgun, miðvikudag, að viðstöddum  Páli S. Brynjarssyni sveitarstjóra Borgarbyggðar og Bjarna Bjarnasyni forstjóra Orkuveitunnar. Vatnsveitan eflir líka brunavarnir í Reykholti, þar sem varaeintakasafn Þjóðarbókhlöðunnar er að finna.
Eftir mikla leit að fullnægjandi vatnsbóli fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki, var ákveðið að virkja vatnsból við mynni Rauðsgils og leggja 4,4 kílómetra langa aðveitulögn milli Rauðsgils og Reykholts. Raunar er vatn víða að finna í dalnum en það er á mörgum stöðum blandað jarðhita. Lítil dælu- og stjórnstöð var byggð í grennd við vatnstökustaðinn. Áður var búið að tengja saman vatnsveiturnar í Reykholti og á Kleppjárnsreykjum til að geta miðlað vatni þar á milli. Engu að síður hefur það gerst hvað eftir annað síðustu sumur, sem hafa verið afar þurrviðrasöm, að keyra hefur þurft vatn á tankbílum í miðlunartank í Reykholti.
Með því að nýja vatnsveitan er tekin í notkun gerist þessa ekki lengur þörf og aðgangur íbúa Reykholtsdals að vatni til neyslu og brunavarna á að vera tryggur. Við þessi tímamót verður lítil athöfn í Reykholti þar sem skrúfað verður formlega frá nýju veitunni og Snorrastofa býður íbúum Reykholtsdals í kaffi á eftir.</description>
Fréttatilkynning frá Slökkviliði Borgarbyggðar og Brunavörnum Suðurnesja
	<description>Fimmtudaginn 18. apríl s.l. voru undirritaðir í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi tveir samningar, annarsvegar um aukið samstarf og gagnkvæma aðstoð við slökkvistarf og mengunaróhöpp, hinsvegar yfirlýsing um samstarf slökkviliðanna vegna þjálfunar slökkviliðsmanna. Samningana undirrituðu þeir Jón Guðlaugsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja fyrir þeirra hönd og Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar fyrir hönd slökkviliðs Borgarbyggðar.
Stutt er síðan þeir félagar Bjarni K. Þorsteinsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Borgarbyggðar og Jón Guðlaugsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja hófu viðræður og undirbúning að þeim gjörningi sem nú er orðin að veruleika.</description>
Matjurtagarðar í sumar
	<description>Íbúum Borgarbyggðar gefst, líkt og undanfarin ár, kostur á að taka á leigu matjurtagarða í Borgarnesi í sumar. Garðarnir eru í landi Gróðrastöðvarinnar Gleymérei.
Boðið er upp á tvær stærðir garða, 15 m2 á kr. 4.148 og 30 m2 á kr. 5.880.  Áhugasamir hafi samband við Björgu Gunnarsdóttur, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða með því að senda póst á netfangið bjorg@borgarbyggd.is .
Sjá auglýsingu</description>
Fréttabréf Kettaborgar
	<description>Fréttabréf leikskólans Klettaborgar í Borgarnesi er komið út. Smellið hér til að lesa fréttabréfið.</description>