Fréttir
Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi
	<description>Um verslunarmannahelgina fer 13. Unglingalandsmót UMFÍ fram í Borgarnesi og nágrenni.  
Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í vetur er staðsetning mótsins var ákveðin.  Mikill fjöldi hefur komið að undirbúningnum en það er Ungmennasamband Borgarfjarðar sem er mótshaldari í samvinnu við UMFÍ og Borgarbyggð.  
Formaður landsmótsnefndar er Björn Bjarki Þorsteinsson en Ómar Bragi Stefánsson er framkvæmdastjóri mótsins og Margrét Baldursdóttir verkefnastjóri.
Keppendur á mótinu eru á aldrinum 11 – 18 ára og er ljóst að mikill fjöldi verður á mótinu þar sem skráningar keppenda eru um 1700 talsins.   Mótið hefst fimmtudaginn 29. júlí og því lýkur að kvöldi sunnudagsins 01. ágúst. 
Mótið fer fram í íþróttamannvirkjum sem eru í Borgarbyggð en tjaldsvæði eru rétt ofan við Borgarnes.  Boðið verður upp á góðar samgöngur á milli keppnisstaða og tjaldsvæðisins. 
Samhliða íþróttakeppninni verður fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna m.a. í Skallagrímsgarði, félagsmiðstöðinni Óðal og í Safnahúsi Borgarfjarðar.  Einnig verða kvöldvökur í samkomutjaldi við tjaldsvæðið.  
Mjög góðar upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu landsmótsins. 
Borgarbyggð býður keppendur og gesti velkomna í sveitarfélagið um verslunarmannahelgina og væntir þess að allir eigi hér góða daga.</description>
Fjallhús í Borgarbyggð
	<description>ÁlftakróksskáliÍ eigu Borgarbyggðar eru nokkur fjallhús vítt og breytt um sveitarfélagið. Flest eru þau notuð sem leitarmannaskálar á haustin en hægt er að fá gistingu fyrir einstaklinga og hópa á öðrum tíma. Húsin eru mismikið notuð enda aðgengi vegna staðsetningar misjafnt. Skálarnir á Arnarvatnsheiði og við Hítarvatn og Langavatn hafa t.d. notið mikilla vinsælda hjá göngu- og hestahópum. Hægt er að panta gistingu og fá upplýsingar um húsin hjá eftirtöldum:
Torfhvalastaðir og Lambafell við Langavatn - Ráðhús Borgarbyggðar s. 433 7100
Úlfsvatnsskáli og Álftakróksskáli á Arnarvatnsheiði - Veiðifélg Arnarvatnsheiðar s. 892 5052/862 7957 eða á heimasíðu http://arnarvatnsheidi.is/
Gilsbakkasel - Ólafur Guðmundsson s. 435 1358
Hítarvatn - Finnbogi Leifsson s. 437 1715</description>
Skipað í Barnaverndarnefnd
	<description>Velferðarnefnd Borgarbyggðar sem hefur tekið við hlutverki félagsmálanefndar, kom saman til fyrsta fundar mánudaginn 12. júlí síðastliðinn. Á fundi nefndarinnar voru kosnir fulltrúar Borgarbyggðar í Barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala. Fulltrúar Borgarbyggðar eru þau Friðrik Aspelund, Inga Margrét Skúladóttir og Hulda Hrönn Sigurðardóttir.
Barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala fer með verkefni barnaverndarnefndar skv. barnaverndarlögum. Félagsmálastjóri fer með daglega framkvæmd og skal tilkynningum og öðrum erindum til nefndarinnar beint til hans.</description>
Tvær sýningar í Safnahúsi Borgarfjarðar
	<description>Frá sýningunni Börn í 100 ár_gjTvær sýningar eru nú í gangi í Safnahúsi. Annars  vegar er það sýningin Börn í 100 ár, sem er á neðri hæð hússins. Þar er opið frá 13-18 alla daga sumarsins. Sýningin þykir einstök í sinni röð og segir sögu Íslands á 20 öld úr frá sjónarhóli og umhverfi barna. Hún hentar jafnt fyrir Íslendinga sem erlenda ferðamenn og alla aldurshópa, ekki síst börn.  Börn í 100 ár er fastasýning Safnahúss og mun standa óbreytt næstu árin. Aðgangseyrir er kr. 600 fyrir fullorðna, en ókeypis er fyrir börn allt að 16 ára aldri. Afsláttur er fyrir eldri borgara, öryrkja og hópa.
KaupmannsfjölskyldanÁ efri hæð hússins er svo sýningin Kaupmannsheimilið, þar sem sagt er frá vandaðri og metnaðarfullri fjölskyldu sem var búsett í Borgarnesi á fyrri hluta 20. aldar. 
Um er að ræða heimili Jóns Björnssonar frá Bæ og Helgu Maríu Björnsdóttur frá Svarfhóli. Þau hjónin áttu fjögur mannvænleg börn og urðu tvö þeirra þjóðþekktir einstaklingar. Sýningin er sett upp á íslensku en það fylgja henni bæklingar á ensku.
Sýningin um Kaupmannsheimilið er opin alla virka daga frá 13-18 og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Hún stendur til 12. nóvember 2010 og aðgangur er ókeypis.</description>
Frjálsíþróttabúðir UMSB
	<description>Frjálsíþróttabúðir Ungmennasambands Borgarfjarðar verða á Skallagrímsvelli dagana 10.-11. júlí næstkomandi. Æfingarnar eru ætlaðar krökkum á unglingalandsmótsaldri, 11 til 18 ára. Á laugardaginn verða tvær æfingar, sú fyrri klukkan 10.00 - 11.30 og seinni æfingin klukkan 14.00 - 15.30. 
Á sunnudaginn verður mót klukkan 14.00 - 16.00 og þá geta krakkarnir keppt í því sem þau vilja.
Þjálfarar er þær Unnur og Rakel. Einnig er minnt á samæfingar UMSB sem eru á Þriðjudögum og fimmtudögum og hefjast klukkan 20.00.</description>
Laust starf hjá Grunnskóla Borgarfjarðar
	<description>Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir tónmenntakennara í 65% stöðuhlutfall fyrir næsta skólaár. Kennari þarf að kenna á fleiri en einni starfsstöð. Upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri, sími 430-1504 / 847-9262.</description>
Svæðisskipulag sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017, kynning
	<description>Samvinnunefnd um svæðisskipulag sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997–2017 boðar til kynningar á niðurfellingu svæðisskipulagsins, sbr. 13. gr. skipulags- og byggingarlaga m.s.br.. 
Kynningin fer fram föstudaginn 2. júlí 2010 frá kl. 10:00 – 12:00 í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu skipulags- og byggingamála Skorradalshrepps, Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri. 
F.h. samvinnunefndar
Jökull Helgason skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps.</description>
Svæðisskipulag Mýrasýslu 1998-2010 kynning
	<description>Samvinnunefnd um svæðisskipulag Mýrasýslu 1998-2010 boðar til kynningar á niðurfellingu svæðisskipulagsins, sbr. 13. gr. skipulags- og byggingarlaga m. s. br.
Kynningin fer fram föstudaginn 2. júlí 2010 frá kl. 10:00 – 12:00 í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi.
Fyrir hönd samvinnunefndar
Sveitarstjórn ályktar
	<description>Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 23. júní síðastliðinn, ályktun um rannsókn á málefnum Sparisjóðs Mýrarsýslu, ályktun um starfsemi háskóla í Borgarbyggð og ályktun um samgöngumál 
Varðandi rannsókn á málefnum Sparisjóðs Mýrasýslu, var svohljóðandi ályktun samþykkt samhljóða:
"Sveitarstjórn Borgarbyggðar ítrekar ályktanir fyrri sveitarstjórnar til Alþingis um að fram fari óháð úttekt á falli Sparisjóðs Mýrasýslu sem og öðrum sparisjóðum og minni bankastofnunum á Íslandi. 
Sveitarstjórn Borgarbyggðar fer fram á að þingmannanefnd um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem skipuð var og Atli Gíslason fer fyrir, taki beiðni þessa til umfjöllunar. Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, bls. 24, bindi 1, að ekki hafi unnist tími til að taka vandamál sparisjóðakerfisins til umfjöllunar þótt þau hafi verðskuldað það og það sé undir Alþingi komið hvort þau verði tekin til sérstakrar rannsóknar. 
Sparisjóður Mýrarsýslu var fyrsta bankastofnunin sem féll á Íslandi sumarið 2008. Sparisjóðurinn var að fullu í eigu Borgarbyggðar, það er ekki ofmælt að fall sjóðsins var mikið áfall fyrir íbúa í Borgarbyggð. 
Það er nauðsynlegt að skýra aðdraganda og ástæður þess að sparisjóðakerfið á Íslandi hrundi og hvort mistök eða vanræksla hafi orðið til þess að starfsemi sjóðanna hafi á einhvern hátt farið á skjön við lög og reglur um fjármálastarfsemi á Íslandi." 
Varðandi háskóla í Borgarbyggð, var svohljóðandi ályktun samþykkt samhljóða: 
" Sveitarstjórn Borgarbyggðar skorar á stjórnvöld að standa vörð um starfsemi háskóla á landsbyggðinni og ráðast ekki í aðgerðir sem dregið geta úr starfsemi þeirra.  Mikilvægi skólanna fyrir byggðaþróun er óumdeilt og hlutverk skólanna hefur aldrei verið mikilvægara en nú, þegar vinna þarf íslenska þjóð út úr þeim efnahagsþrengingum sem glímt er við."
Varðandi samgöngumál var svohljóðandi ályktun samþykkt samhljóða:
" Það er ljóst að fjárveitingar í samgönguáætlun til viðhalds og nýframkvæmda við vegi í Borgarbyggð eru í hróplegu ósamræmi við lengd vegakerfisins og ástand þess. 
Vegakerfið í Borgarbyggð er afar víðfeðmt og víða orðin gríðarleg þörf á endurbótum og lagfæringum. Sveitarstjórn Borgarbyggðar krefst þess að stjórnvöld skipti fjármagni til vegaframkvæmda með sanngjörnum hætti og taki tillit til vegalengda og ástands vegakerfisins innan sveitarfélaga við úthlutun fjármagns til viðhalds og nýframkvæmda."</description>
Málstofa á Bifröst
	<description>Málstofa verður í Hriflu, hátíðarsalnum á Bifröst klukkan 14.00 í dag, mánudaginn 28. júní. Þar verður bókin Kreppa kynnt og síðan verða umræður um hrunið og hvaða áhrif það hefur á stöðu lítilla hagkerfa í alþjóðlegu umhverfi.</description>
Inga Björk Bjarnadóttir hefur verið ráðin í sumarvinnu við skráningu gæludýra í Borgarbyggð
	<description>Borgarbyggð hefur ráðið Ingu Björk Bjarnadóttur í sumarvinnu í nokkrar vikur við að bæta skráningu á gæludýrum í sveitarfélaginu. Allt of algengt hefur verið að handsömuð strokudýr hafi verið óskráð. Undanfarnar vikur hefur hún unnið við að safna upplýsingum um gæludýr í þéttbýli í sveitarfélaginu og athuga hvort þau séu á skrá. Í ljós hefur komið að vitað er um 70 dýr sem ekki eru á skrá. Á næstunni verður haft samband við eigendur þeirra og þeir hvattir til að skrá dýrin og ljúka þannig málinu.</description>
Brákarhátíð um helgina
	<description>Spennandi og fjölbreytt dagskrá Brákarhátíðar í Borgarnesi 26. júní næstkomandi er nú tilbúin. Dagurinn byrjar á búningagerð í Menntskólanum og Brákarhlaupi frá Granastaðatúninu. Nú verða bæði hlaupnir 2,5 km og 10 km. Leðjubolti í Englendingavík er líka nýjung svo og kvöldskemmtunin í Englendavík. Sjá má dagskrána hér eða á www.brakarhatid.is</description>
Sjálfboðaliðar óskast!
	<description>Það verður í mörg horn að líta við undirbúning og framkvæmd Unglingalandsmótsins í Borgarnesi. Margar hendur vinna létt verk og nú er auglýst eftir sjálfboðaliðum sem vilja leggja sitt af mörkum til að mótið verði sem glæsilegast og um leið góð kynning fyrir byggðarlagið. 
Mörg störf þarf að vinna. Uppsetning skilta og fána og almennur undirbúningur vikuna fyrir mót, móttaka og upplýsingagjöf til keppenda og annarra gesta, aðstoð við íþróttakeppni, eftirlit á tjaldsvæði og umsjón með dagskrá fyrir yngstu börnin er meðal þess sem verður mannað sjálfboðaliðum. Allir sem vilja leggja hönd á plóg ættu að geta fundið verkefni við hæfi.
Áhugasamir hafi samband við Margréti, verkefnastjóra Unglingalandsmótsins,  með því að senda póst á margret@umfi.iseða hringja í síma 699 3253. Takið fram ef þið hafið sérstakar óskir um verkefni.</description>
Lausar stöður við leikskólann Hnoðraból
	<description>Við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal eru lausar stöður leikskólakennara og deildarstjóra frá og með 5. ágúst n.k. Um er að ræða fulla stöðu deildarstjóra og fulla stöðu leikskólakennara. 
Leikskólinn Hnoðraból er einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 15-20 börn á aldrinum 18 mánaða til  5 ára og 4-5 starfsmenn.
Umsóknarfrestur er til 29. júní. Sjá auglýsingu hér.
Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir, leikskólastjóri, í síma 435-1157 eða 862-0064, eða í tölvupósti; hnodrabol@borgarbyggd.is.</description>
17. júní hátíðardagskrá 2010
	<description>Þjóðhátíðardegi Íslendinga verður fagnað víða í sveitarfélaginu. 
Á Hvanneyri stendur Ungmennafélagið Íslendingur fyrir dagskrá og þjóðhátíðargrilli.  
Í Lindartungu verða ungmennafélagið Eldborg og Kvenfélagið Björk með leiki og veitingar.  
Í Brautartungu sér Ungmennafélagið Dagrenning um dagskrá. 
Í Logalandistendur Ungmennafélag Reykdæla fyrir hátíðahöldum. 
Nánari dagskrá auglýst á viðkomandi stöðum. 
Hátíðahöld á vegum sveitarfélagsins fara fram í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. 
Dagskrá má sjá hér: 
Gleðilegt sumar!</description>
Mímir ungmennahús 10 ára
	<description>Í dag 16. júní er Mímir ungmennahús 10 ára en ungmennahúsið hóf starfsemi í gömlu kartöflugeymslunni við Kveldúlfsgötu þann dag fyrir 10 árum.  Það voru kraftmikil ungmenni sem tóku virkan þátt í að undirbúa aðstöðuna og starfsemina á þeim árum en aðstaða fyrir aldurinn 16 – 25 ára ungmenni var þá ekki fyrir hendi í sveitarfélaginu.   Segja má að starfsemin hafi gengið vel þessu ár og frekar bætt við sig þessi ár sem liðin eru en ungmennahúsið flutti starfsemi sína í nýtt húsnæði í Menntaskóla Borgarfjarðar í september á síðasta ári og fer starfsemin nú þar fram í samstarfi við stjórn nemendafélags menntaskólans. Í sparnaðarskyni hefur ekki verið starfsmaður í ungmennahúsinu s.l. tvö ár en ungmennin sjálf hafa myndað húsráð sem heldur uppi starfinu með kvöldopnun, uppákomum, fræðslu fyrir ungmenni og farið í skemmtiferðir ofl. til að þjappa þessum aldurshóp saman.  
Hátíðahöld verða að bíða því nú eru svo mörg ungmenni í stjórn hússins stödd í útskriftarferð á sólarströndu en klárlega verður afmælinu fagnað seinna í sumar eða  haust.  
Til hamingju ungmenni í Mími með mikilvægt starf ykkar í ungmennahúsinu.
ij</description>
Laus störf á leikskólanum Hnoðrabóli
	<description>Við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal eru lausar stöður leikskólakennara og deildarstjóra frá og með 5. ágúst n.k.   
Um er að ræða fulla stöðu deildarstjóra og fulla stöðu leikskólakennara. 
Auglýsing um störfin er á þessari heimasíðu undir SVEITARFELAGIÐ/LAUS STÖRF  og hana er einnig að finna með því að smella hér.</description>
17 júní í Reykholtsdal
	<description>Að venju stendur Ungmennafélag Reykdæla fyrir skemmtun í Reykholtsdal á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Dagskráin hefst með hátíðarmessu í Reykholtskirkju kl. 11. Venjan hefur verið sú að kirkjugestir hafi komið ríðandi til messu, en nú verður það ekki gert vegna hrossasóttarinnar.
Klukkan 13 verður hefðbundin hangikjötsveisla í Logalandi og kl. 14 hefst þar hátíðardagskrá.  Sjá nánar allt um dagskrána hér.</description>
Meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Borgarbyggðar
	<description>Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hafa komist að samkomulagi um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Borgarbyggðar næsta kjörtímabil. 
Samningur þar um var undirritaður á Hvanneyri 9. júní s.l.  
Í málefnasamningnum er kveðið á um helstu áhersluatriði sem flokkarnir stefna að á kjörtímabilinu.
Ragnar Frank Kristjánsson tekur við embætti forseta sveitarstjórnar og Björn Bjarki Þorsteinsson verður formaður byggðarráðs. 
Formennsku í nefndum verður skipt á milli flokkanna. 
Flokkarnir hafa einnig samþykkt að óska eftir því við Pál S. Brynjarsson að hann verði áfram sveitarstjóri í Borgarbyggð.</description>
Göngur Ungmennasambands Borgarfjarðar í sumar
	<description>Í  sumar verður gengið að ýmsum fossum í héraðinu, sérstaklega þeim sem ekki eru  í alfaraleið. Göngurnar verða flestar að venju á fimmtudagskvöldum. Auk þess verður gengið á Þyril  og Varmalækjarmúla sem eru fjöll UMSB í verkefni UMFÍ, “fjölskyldan á fjallið” og verða gestabækur þar í sumar.
Föstudaginn 11. júní,  kl. 19.00 verður farið með gestabók á Þyril í Hvalfirði. 
Miðvikudaginn 23.júní. kl.20.00.  Jónsmessuganga á Varmalækjamúla.  
Fimmtudaginn 8. júlí kl.19.30. Gengið með Botnsá og skoðaðir fossar (ekki Glymur)   
Fimmtudaginn 22. júlí kl. 19.30. Fossaganga með Fitjaá í Skorradal,  Hvítserkur og fleiri fossar.  
Fimmtudaginn 5. ágúst. Kl. 19.30.  Deildargil við Hraunsás í Hálsasveit.  
Fimmtudaginn 19. ágúst kl. 19.30. Gengið upp með Rauðsgili og fossarnir þar skoðaðir.  
Fimmtudaginn 2. september kl. 19.30. Gengið um Árdalsgil við Árdal.  
Nánari upplýsingar um göngurnar er hægt að fá í síma 
862 6361 og á vefnum www.umsb.is</description>