Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
3. september 2010

Vetrarstarf að fara af stað

Nú er sá tími að vetrardagskrá í íþrótta- og æskulýðsmálum er kynnt bæði sem í boði er á vegum sveitarfélagsins og einnig hjá frjálsum félagasamtökum sem sinna sínu mikilvæga starfi. 

Á heimasíðu þessari undir íþróttir- og æskulýðsmál má sjá hvað er í boði auk þess sem heimasíður deilda eru með nánari upplýsingar um starf sitt og æfingatöflur.  Við hvetjum alla að vera með í starfinu í vetur og taka virkan þátt í gefandi frítímastarfi. Undir íþróttamiðstöðvum má sjá tilboð fyrir almenning og æfingatöflur fyrir börn og unglinga. 

Í sumar var ágætis aðsókn í allar laugar enda sumarið einstaklega gott og enn eitt metið var slegið í sundlauginni í Borgarnesi  þegar tæplega 25.000 gestir heimsóttu okkur í júlí sem er mikil bæting frá fyrra ári og skýrist aðallega á unglingalandsmótinu.  Eins var júní einnig metmánuður með um 11.000 gestum.  Sjá dagskrá vetrar hér.

ij

 

2. september 2010

Breyttur opnunartími á gámastöðinni í Borgarnesi

Opnunartími gámastöðvarinnar í Borgarnesi breyttist þann 1. september síðastliðinn.

Opnunartíminn verður framvegis frá kl. 14.00 – 18.00 alla daga nema sunnudaga og lögbundna frídaga.

Framkvæmdasvið

 

2. september 2010

Síðasta kvöldganga sumarsins

Ungmennasamband Borgarfjarðar hefur skipulagt sjö kvöldgöngur í sumar og hafa þær verið vel sóttar. Sjöunda og síðasta kvöldganga Ungmennasambandsins í sumar verður  í kvöld, fimmtudaginn 2. september. Gangan hefst kl. 19.30 og gengið verður upp Árdalsgil  

Mæting við Árdal. Göngustjóri verður Pétur Jónsson.

Í tengslum við verkefnið Fjölskyldan á fjallið á eftir að fara tvær göngur til að ná í póstkassa og gestabækur upp á Varmalækjamúla og Þyril. Þær göngur verða auglýstar síðar. 

2. september 2010

Endurvinnslutunnur

Frá og með 1. október verður sú breyting á sorphirðu að endurvinnslutunnur verða settar við öll hús í þéttbýli í Borgarbyggð. Þetta á því við um Borgarnes, Hvanneyri, Kleppjárnsreyki, Reykholt, Bæjarsveit, Varmaland og Bifröst. Þeim sem nú þegar eru með endurvinnslutunnur er bent á að þeir geta sagt þeim upp til viðkomandi fyrirtækis en nýju tunnurnar verða á vegum sveitarfélagsins.

2. september 2010

Íslenska Gámafélagið ehf. tekur við

Undanfarna daga hefur starfsfólk gámafyrirtækja verið að skipta út gámum á gámavöllum í Borgarbyggð.

Eins og kunnugt er, var í kjölfar útboðs, samið við Íslenska Gámafélagið ehf. um sorphirðu í Borgarbyggð til næstu fimm ára.

Íbúar eru beðnir að sýna þessum breytingum skilning en fljótlega má búast við að gámastöðvar verði fullbúnar að nýju. 

Um leið og við bjóðum Íslenska Gámafélagið velkomið til starfa í sveitarfélaginu, þökkum við Gámaþjónustu Vesturlands fyrir samstarfið á liðnum árum.

Framkvæmdasvið