Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
24. júní 2010 10:16

Sjálfboðaliðar óskast!

Það verður í mörg horn að líta við undirbúning og framkvæmd Unglingalandsmótsins í Borgarnesi. Margar hendur vinna létt verk og nú er auglýst eftir sjálfboðaliðum sem vilja leggja sitt af mörkum til að mótið verði sem glæsilegast og um leið góð kynning fyrir byggðarlagið.

Mörg störf þarf að vinna. Uppsetning skilta og fána og almennur undirbúningur vikuna fyrir mót, móttaka og upplýsingagjöf til keppenda og annarra gesta, aðstoð við íþróttakeppni, eftirlit á tjaldsvæði og umsjón með dagskrá fyrir yngstu börnin er meðal þess sem verður mannað sjálfboðaliðum. Allir sem vilja leggja hönd á plóg ættu að geta fundið verkefni við hæfi.

Áhugasamir hafi samband við Margréti, verkefnastjóra Unglingalandsmótsins,  með því að senda póst á margret@umfi.iseða hringja í síma 699 3253. Takið fram ef þið hafið sérstakar óskir um verkefni.