Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
Fyrri mánuður
júní 2013
Næsti mánuður
4. janúar 2011 14:37

Breytingar hjá Borgarbyggð

Indriði Jósafatsson sem gengt hefur starfi íþrótta- og æskulýðsfulltrúa hjá Borgarbyggð hætti störfum hjá sveitarfélaginu nú um áramótin.  

Eiginlegt starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa hefur nú verið lagt niður og verkefnum skipt niður á aðra starfsmenn sveitarfélagsins. Félagsmálastjóri tekur  við forvarnar- og æskulýðsmálum og fræðslustjóri mun sinna íþróttamálum.  Sigurþór Kristjánsson mun hafa umsjón með æskulýðsmiðstöðvum í sveitarfélaginu.

Sveitarstjórn og samstarfsmenn Indriða hjá Borgarbyggð þakka honum gott samtarf á liðnum árum og óska honum alls hins besta á nýjum vettvangi.

 

Aðrar breytingar eru þær helstar að félagsmálastjóri og fræðslustjóri munu stýra fjölskyldusviði og skipta með sér verkum. Starfsmenn í búsetuþjónustu fatlaðra og í Holti flytjast nú yfir til sveitarfélagsins, en Fjöliðjan verður áfram sameiginleg fyrir Akranes og Borgarbyggð og mun Akraneskaupstaður hafa umsjón með rekstrinum.   Guðrún Kristinsdóttir mun stýra starfsemi í Holti og verða ráðgefandi þroskaþjálfi hjá Borgarbyggð.  Sigurður Ragnarsson sálfræðingur hefur  verið ráðinn í 70% starf sem sálfræðingur og ráðgjafi.

Þá hefur starf eldvarnareftilitsmanns verið lagt niður en þess í stað var stofnað starf aðstoðarslökkviliðsstjóra og starf við ferðaþjónustu fatlaðra.  Haukur Valsson mun gegna þessum störfum.