Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
21. mars 2012 10:47

Stútungasaga í Hjálmakletti

Frá leikfélagi MB

Leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýnir Stútungassögu, í leikstjórn Stefáns Benedikts Vilhelmssoar, föstudaginn 23. mars í Hjálmakletti. Stútungasaga byggir á gamansaman hátt á fornsögunum, einkum Sturlungu. Bændur berjast og brenna bæi hvers annars, gifta syni sína og dætur eftir hentugleikum og skreppa í heimsóknir til konungshjónanna af Noregi inn á milli bardaga, bruna og brúðkaupa. Farið er vandlega í saumana á frillulífi á Íslandi í þá daga og má segja að þessarar tíðar fólk gefi afkomendum sínum ekkert eftir.  

Skáldkona ein skrifar "söguna" eftir því sem hún fær kálfsskinn til, en bóndi hennar er orðinn langþreyttur á því að gripir hans nái aldrei fullum vexti.

 

Höfundar Stútungasögu eru þau Ármann Guðmundsson, Hjördís Hjartardóttir, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.

 

17 nemendur taka þátt í leikritinu, en hópurinn er  yfir 20 manns.

Síðustu tvö ár hafa nemendur farið þá leið að ráða til sín nýútskrifaða leiklistanema til að leikstýra uppfærslunni og hefur sú reynsla skilað sér vel og samstarfið gott.

Það var Bjartur Guðmundsson sem leikstýrði og samdi ásamt leikhóp Mannsins myrku hlið í fyrra eftir plötu Pink Floyd. 

 

Leikfélag Menntaskólans sem hefur  sett upp þessar uppfærslur:

2008: Gullna hliðið – Leikstjóri: Margrét Ákadóttir

2010: Uppreisn æru – Leikstjóri: Ása Hlín Svavarsdóttir

2011: Mannsins myrka hlið – Leikstjóri: Bjartur Guðmundsson

2012: Stútungasaga – Leikstjóri: Stefán Benedikt Vilhelmsson

 

Miðsala í síma 8696968(Alda)/8655081(Eyrún) og einnig á leikfelag@menntaborg.is