Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
3. apríl 2012 13:16

Átak í handsömun katta í Borgarnesi

Fjöldi katta í Borgarnesi er farinn að valda mörgum íbúum ónæði. Í flestum tilfellum er um villiketti eða ómerkta óskráða ketti að ræða. Því hefur verið ákveðið að gæludýraeftirlitsmaður  muni frá og með morgundeginum og næstu vikur fara í átak í handsömun óskráðra katta í Borgarnesi. Handsamaðir kettir verða auglýstir og afhentir réttum eigandum gegn greiðslu handsömunargjalds, eftir að þeir hafa verið skráðir. Villikettirnir verða hinsvegar svæfðir.

Þeim kattaeigendum sem enn hafa ekki skráð ketti sína er bent á að bæta þar úr hið bráðasta og losna þannig við óþarfa kostnað. Þeir kattareigendur sem eru með ketti sína á skrá eða hafa sótt um skráningu eru beðnir um að sjá til þess að kettirnir séu vel merktir til að auðvelda eftirlitsmanni að greina þá frá hinum án þess að þurfa að lesa á eyrnamerki eða örmerki.