Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
20. júní 2012 11:59

Tilkynning frá Orkuveitunni

Umfangsmikið rafmagnsleysi á Vesturlandi aðfararnótt föstudagsins 22. júní mun valda  truflunum í veitukerfum Orkuveitu Reykjavíkur á svæðinu. Starfsfólk Orkuveitunnar verður með aukinn viðbúnað vegna þessa.

Landsnet þarf að sinna viðhaldi í tengivirkinu við Vatnshamra í Borgarfirði aðfararnótt föstudagsins, frá miðnætti til kl. sex á föstudagsmorgun. RARIK, sem sér um rafmagnsdreifingu á Vesturlandi, hefur tilkynnt að rafmagnslaust verði norðan Skarðheiðar, það er í Borgarfirði, Mýrasýslu og á Snæfellsnesi og þar með talið á öllum þéttbýlisstöðum, svo sem í Borgarnesi, á Bifröst, á Hvanneyri, í Grundarfirði, í Stykkishólmi, í Ólafsvík, á Hellissandi, á Rifi og á Arnarstapa.

Rafmagnsleysið mun valda truflunum í rekstri veitukerfa Orkuveitunnar á þessu svæði. Með fyrirbyggjandi aðgerðum starfsfólks er unnið að því að áhrif rafmagnsleysisins verði sem minnst.

Einkum er hætt við að truflun verði í rekstri vatnsveitu Borgfirðinga frá Grábrókarhrauni. Sjálfrennsli er í vatnsveitunni í Stykkishólmi og frá vatnsgeymi í Grundarfirði. Varaafl er fyrir hitaveituna frá Deildartunguhver. Í Skorradal má búast við truflun á rekstri hitaveitu. Starfsemi Orkuveitunnar á Akranesi verður með eðlilegum hætti en straumleysið nær ekki þangað.

Viðvörun!

Íbúar þar sem búast má við að kaldavatnsþrýstingur verði lægri en venjulega en ekki heitavatnslaust eru sérstaklega varaðir við að slysahætta getur skapast af því að heitara vatn komi úr krönum en venja er til, jafnvel úr hitastýrðum blöndunartækjum. Þetta á sérstaklega við íbúa Borgarness og Borgarfjarðar