Vegna mikillar umræðu í fjölmiðlum undanfarið um að Borgarbyggð standi sig ekki í veiði á ref og mink og verði ekki til þeirra nægilegu fjármagni saman borið við önnur sveitarfélög var talin ástæða til að taka saman skýrslu um hvað sveitarfélögin á Íslandi hafa varið í veiðar á árunum 2002 - 2010. Hún segir ekki alla söguna en segir þó að Borgarbyggð hefur ætíð varið miklu fé í refa- og minkaveiði í hlutfalli við önnur sveitarfélög. Borgarbyggð er 6. landstærsta sveitarfélag landsins og hefur lengst af varið mestu fjármagni til veiðanna.
Hér má sjá skýrsluna.
Hér má sjá röðun sveitarfélaga eftir landstærð.
Hér má sjá íbúafjölda í sveitarfélögunum.