Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
3. júlí 2012 11:28

Hreinsun rotþróa hafin hjá Borgarbyggð

Hafin er vinna við hreinsun rotþróa í Borgarbyggð fyrir sumarið 2012 en Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands sér um losun rotþróa í sveitarfélaginu.

Samningur sveitarfélagsins við verktakann miðar við að hver rotþró sé tæmd einu sinni á þriggja ára fresti.

Til þess að hreinsun geti gengið auðveldlega fyrir sig þurfa húseigendur að tryggja óheft aðgengi að lóðum sínum og sjá til þess að hlið séu ólæst.  Til að hægt sé að fjarlægja seyru úr öllum hólfum rotþróar þarf að lágmarki að vera 4 tommu (10 cm) stútar á öllum hólfum hennar.  Nauðsynlegt er einnig að merkja staðsetningu rotþróa vel t.d. með veifu eða flaggi, til að auðvelda hreinsunarverktakanum að finna þær.

 

Rétt er að árétta að þegar rotþró er tæmd er allt fast og fljótandi seyruefni fjarlægt úr öllum hólfum hennar en síðan er efninu dælt í gegnum skilju á dælubíl, þar sem fastefnin eru skilin frá, en vatni sem frá þessu ferli kemur er dælt aftur ofaní rotþróna til þess að virkni hennar verði áfram tryggð.  Uppdældu efni úr rotþróm er síðan ekið til urðunar á viðurkenndum urðunarstað.

Rotþróarhreinsunin er innifalin í árgjaldi sem sveitarfélagið innheimtir samhliða fasteignagjöldum og tekur gjaldið mið af því að um sé að ræða eina losun á þriggja ára fresti.

 

Jökull Helgason

Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs