Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
14. ágúst 2012 08:26

Merk gjöf til Safnahúss

Ein myndanna sem enski aðalsmaðurinn W. G. Collingwood  málaði á Íslandi sumarið 1897 hefur verið afhent Safnahúsi Borgarfjarðar til eignar og varðveislu. Um er að ræða mynd sem Collingwood málaði á Gilsbakka í Hvítársíðu þegar hann dvaldi þar á ferðum sínum um íslenska sögustaði.  Alls málaði Collingwood þrjár myndir á Gilsbakka þetta sumar, eina af bænum sjálfum og aðra af gilinu við bæinn auk myndarinnar sem hér um ræðir, sem er af litlu stúlkubarni. Málverkið verður til sýnis í Safnahúsi til 27. ágúst n.k.

Fyrirmyndin var Guðrún Magnúsdóttir fædd 1896, dóttir þáverandi húsaráðenda á Gilsbakka, séra Magnúsar Andréssonar og Sigríðar Pétursdóttur. Efri myndin er eftirmynd af málverki Collingwoods, birt með góðfúslegu leyfi ljósmyndarans, Einars Fals Ingólfssonar. Á neðri myndinni er dóttir Guðrúnar Sigríður Sigurðardóttir við skrifborð afa síns Magnúsar á sýningunni um hann í Safnahúsi, mynd Collingwoods á skrifborðinu. Ljósmynd: GJ.

Sjá nánar á www.safnahus.is