Menningarráð Vesturlands hefur veitt styrki fyrir 23 milljónir króna til menningarverkefna á Vesturlandi. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn s.l. fimmtudag á safnasvæðinu að Görðum á Akranesi og það var samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, sem það gerði.
Styrkt voru ýmis áhugaverð verkefni sem einstaklingar, félagasamtök og stofnanir á Vesturlandi standa fyrir. Hér á eftir fer listi yfir þau verkefni sem hlutu styrki, en nánari upplýsingar má svo sjá á heimasíðu Menningarráðs: www.menningarviti.is
Styrkúthlutanir Menningarráðs Vesturlands árið 2007
Askur og Embla ehf: Kvikmynd um vesturfara - 400.000
Byggðasafnið að Görðum Akranesi: Menningartengd ferðaþjónusta/handverk - 400.000
Dalaleir, listiðnaður: Hönnun, listmunir úr leir frá Fagradal á Skarðsströnd - 200.000
Einkunnir, Borgarnesi: Merkingar svæðisins - 500.000
Eyrbyggja, Grundarfirði: Rafrænt sýningarhald í sögumiðstöð - 400.000
Félag atvinnulífsins í Grundarfirði: Ungir rokklistam. á Góðri stund - 200.000
Fjölbrautarskóli Snæfellinga: Saga og goðsagnir á Snæfellsnesi. Leiksýning - 500.000
Fjölmenning: Fjölmenning í Borgarbyggð - 200.000
Framfarafélag Snæfellsbæjar: Útgerðarsaga Ólafsvíkur - 150.000
Freyjukórinn Borgarfirði: Tónleikar, innlent kórasamstarf - 150.000
Grundaskóli Akranesi - Söngleikurinn Draumaleit - erlent samstarf - 500.000
Grundaskóli Akranesi: Ungir gamlir, tónlistarverkefni - 500.000
Grunnskólinn í Búðardal: Víkingþorp - Laxdæla og Eiríkssaga - 1.000.000
Grunnskólinn í Stykkishólmi: Söngleikur - 1.000.000
Hallgrímskirkja í Saurbæ: Megas flytur passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar - 395.000
Upplifðu allt/ All Senses: Kynningamyndband um Vesturland - 300.000
Heiðarskóli, Ásatrú: Sveinbjörn Beinteinsson, Ásatrú - 250.000
Heiðarskóli, Hallgrímskirkja: Menningardagskrá um sr. Hallgrím Pétursson - 250.000
Hestamannafélagið Dreyri: Menningarsöguleg samantekt á myndbandi - 150.000
IsNord tónlistarhártíð: Námskeið, söngleikhús og sýning - 200.000
IsNord tónlistarhártíð: Tónlistarhátíð um hvítasunnuna - 400.000
Kammerkór Akraness: Tónleikaferð um Vesturland - 150.000
Kammerkór Vesturlands: Tónleikar með hljóðfæraleikurum - 150.000
Kirkjuhvoll Akranesi: Listasýningar - 300.000
Kór Stykkishólmskirkju: Sumartónleikaröð í Stykkishólmskirkju - 550.000
Kvenfélagið Hringurinn Stykkishólmi: 100 ára afmæli kvenfélagsins - 200.000
Kvikmyndahátíð: Alþjóðleg kvikmynda og listahátíð í Grundarfirði - 700.000
Landnámssetur Íslands: Hljóðleiðsögn - 200.000
Landnámssetur Íslands: Menningarkvöld fyrir heimamenn - 400.000
Lista og menningarfélag Snæfellsbæjar: Jólatónleikar - 100.000
Lista og menningarnefnd Snæfellsbæjar: Fjölmenningarhátíð - 200.000
Lista og menningarnefnd Snæfellsbæjar: Listasmiðja barna og unglinga 2007 - 300.000
Lista og menningarnefnd Snæfellsbæjar: Myndlistasýning í Ólafsvík á verkum - 300.000
Listsýningar í leir: Mæðgur sýna leirlist á Vesturlandi: 200.000
Ljósmyndasafn Akraness: Akranes í myndum frá 1960 - 200.000
Markaðstofa. Akraness: Kátir voru karlar, tónlistardagskrá á Hátíð hafsins - 200.000
Herradeild.P.Ó. Akranesi: Tónleikar á Vökudögum - 200.000
Myndlistarsýning: Málverk og teikningar af sr. Hallgrími Péturssyni - 100.000
Náttúrustofa Vesturlands: Fræðslumynd, kynning á náttúru Vesturlands - 700.000
Norska Húsið: 20. öldin í Norska húsinu - 300.000
Norska Húsið: Margmiðlun-hljóðleiðsögn-heimasíða - 200.000
Norska Húsið: Vettlingasýning og búningadagur - 200.000
Óperusöngur á Vesturlandi: Tónleikar, íslensk tónskáld - 200.000
Outsiders Art: Listasmiðja, erlent samstarf - 200.000
Pakkhúsið Snæfellsbæ: Menningarsöguleg ljósmyndasýning - 200.000
Penna sf: Listasmiðja/fyrirlestrar/málþing/hátíðardagskrá um Stefán frá Hvítadal - 400.000
Safnahús Borgarfjarðar: Pourquoi-Pas? strandið, í Englendingavík - 250.000
Sagnanámskeið Fagurhóli: Sagnanámskeið fyrir börn í Grundarfirði - 150.000
Samhljómur: Tónlistarhátíð í Reykholti - 800.000
Skagaleikflokkurinn: Leiklist, Salka Valka - 400.000
Snorrastofa Reykholti: Sr. Hallgrímur Pétursson og samtíð hans - 500.000
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull: Sjónskífa á Saxhóli - 500.000
Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness: Tónleikar og sýning - 1.000.000
Tónlist í Hvalfjarðarsveit: Tónlist í Hallgrímskirkju, heimafólk - 150.000
Tónlistafélag Borgarfjarðar: 40. starfsár Tónlistarfélags Borgarfjarðar - 250.000
Tónlistarskóli Borgarfjarðar: Sígaunabaróninn, óperuuppfærsla - 1.000.000
Tónlistarskóli Stykkishólms - Slagverksnemendur, skrúðgöngur - 200.000
Ullarselið Hvanneyri: Kynning á ullarvinnslu - 150.000
Ungt tónskáld úr Borgarfirði: Hljómlistarverk, frumsamið - 200.000
Veiðiminjasafn í Ferjukoti: Sýning og veiðiminjasafn - 490.000
Vestur til vesturs: Vestur Ísland/Vestur-Kanada, ljósmyndasýningar 200.000
Vínartónleikar: Tónleikar í Stykkishólmskirkju og í Reykholti með hljómsveit - 400.000