Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
19. júní 2007 09:52

17. júní í blíðskaparveðri

Veðurguðirnir léku svo sannarlega við þjóðhátíðargesti í Skallagrímsgarði í Borgarnesi á sunnudaginn. Mikil og góð stemming var í garðinum. Sigríður Margrét Guðmundsdóttir flutti hátíðarávarp og nýstúdentinn Nanna Einarsdóttir flutti ávarp fjallkonunnar. Þá stigu Baula Brák og Snerill Gjallandi á stokk ásamt aðstoðarhundi og aðstoðartrúði og vöktu þau mikla lukku hjá öllum aldurshópum. Elín Elísabet Einarsdóttir söng tvö frumsamin lög og götuleikhús vinnuskólans flutti leikritið Himnasápan. Samkór Mýramanna, nýkomin heim frá Ítalíu, söng nokkur lög og rúsínan í pylsuendanum voru svo félagarnir KK og Magnús Eiríksson sem léku við hvern sinn fingur í góðan hálftíma.

Meðfylgjandi myndir tók Helgi Helgason í Skallagrímsgarði á þjóðhátíðardaginn.