Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
5. júlí 2007 10:35

Ferguson-lest, safnarúta og fleira skemmtilegt

Næstkomandi sunnudag, 8. júlí, verður Safnadagurinn haldinn hátíðlegur hjá söfnum um allt land. Söfn í Borgarfirði taka þátt í deginum hvert með sínum hætti. Án þess að halla á aðra þá er vert að vekja athygli á uppákomum sem verða á Hvanneyri og nágrenni þennan dag. Dagskráin, sem er í höndum Bjarna Guðmundssonar á Landbúnaðarsafninu og fleiri góðra manna, samanstendur af skrúðakstri fornra og nýrra Fergusona, sögugöngu um Hvanneyrarstað og safnarúnt með elstu langferðabifreið landsins.

 

 

Dagskráin verður sem hér segir:

 

1. Ferguson-lestin um Andakíl 

Urmli Fergusona fornra og nýrra verður ekið skrúðakstri um Andakíl. Lagt upp frá safninu á Hvanneyri um kl. 13.00 og komið þangað aftur milli kl. 15.00-16.00. Haukur Júlíusson verður skrúðakstursstjóri.

 

2. Söguganga um Hvanneyrarstað

Lagt verður af stað kl. 14.00 frá Safni/Ullarseli við gamla Hvanneyrarhlaðið. Sögumaður verður Bjarni Guðmundsson. Gangan tekur um 45 mínútur.

 

3. Safnarúta Sæmundar

Fornrútan hans Sæmundar Sigmundssonarekur á milli Landbúnaðarsafnsins á Hvanneyri og Veiði- og sögusafnsins í Ferjukoti milli kl. 13.30-16.00. Gestir geta keypt sér far með þessari einstöku bifreið og kíkt á bæði söfnin. Um er að ræða elstu langferðabifreið landsins í höndum eins reyndasta bílstjóra héraðsins, Halldórs Brynjólfssonar.

 

Landbúnaðarsafnið (Búvélaasafnið) á Hvanneyri verður opið frá kl. 12.00-17.00. Aðgangur er ókeypis, en frjáls framlög þegin. Ullarselið er opið og hressingu er að fá í Kollubúð.

 

 

Þá má nefna að ókeypis aðgangur verður að sýningunni um Pourquoi-pas? í Englendingavík í Borgarnesi þennan dag. Opið verður frá kl. 13.00–18.00.