Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
22. febrúar 2008 14:48

Nýjar reglur um efnistöku úr eldri námum

Vakin er athygli á breyttum ákvæðum laga um náttúruvernd, nr. 44/1999. Samkvæmt þeim er efnistaka úr námum sem teknar voru í notkun fyrir 1. júlí 1999 óheimil frá 1. júlí 2008, nema að fengnu framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar skv. 27. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, eigi eitt eða fleiri af eftirfarandi atriðum við um efnistökuna: 

a. áætluð er stækkun efnistökusvæðis um 25.000 m² eða  meira,
    b. áætluð efnistaka eftir 1. júlí 2008 er 50.000 m³ eða meiri,
    c. áætluð er samanlögð stækkun tveggja eða fleiri efnistökustaða vegna sömu framkvæmdar og á sama svæði um 25.000 m² eða meira,
    d. efnistakan fer fram á verndarsvæði, sbr. iii. lið 2. tölul. 3. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, eða á svæði sem fyrirhugað er að verði friðlýst samkvæmt náttúruverndaráætlun sem samþykkt hefur verið á Alþingi.

Við veitingu framkvæmdaleyfis skv. skipulags- og byggingarlögum skal fylgja ákvæðum 48. og 49. gr. laga um náttúruvernd.
Lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, gilda um efnistöku samkvæmt ofangreindu.
Eftir 1. júlí 2012 skal afla framkvæmdaleyfis fyrir allri efnistöku á svæðum þar sem efnistaka var hafin fyrir 1. júlí 1999 í samræmi við VI. kafla laga um náttúruvernd.
Sveitarstjórnir bera ábyrgð á eftirliti með efnistöku og að framkvæmdir séu í samræmi við útgefin framkvæmdaleyfi.

 

Mynd: Björg Gunnarsdóttir