Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
25. febrúar 2008 13:50

Bætt aðstaða til sorpflokkunar fyrir starfsmenn fyrirtækja í Stjórnsýsluhúsinu í Borgarnesi

Fyrirtæki, stofnanir og einyrkjar í Stjórnsýsluhúsinu í Borgarnesi hafa tekið höndum saman og fengið sér 500 lítra endurvinnslutunnu frá Gámaþjónustunni. Með því að bjóða upp á aðstöðu til sorpflokkunar við Stjórnsýsluhúsið er lagður grunnur að því að draga verulega úr því sorpmagni sem sent er til urðunar í Fíflholt.  Í endurvinnslutunnuna mega fara sjö flokkar úrgangs, þ.e. dagblöð, skrifstofupappír, fernur, bylgjupappír, málmar, rafhlöður og plastumbúðir. Flokkaði úrgangurinn er síðan fluttur til Hafnarfjarðar á flokkunarstöð Gámaþjónustunnar og sendur þaðan úr landi til endurvinnslu. Jafnstóru keri fyrir almennan úrgang var skipt út fyrir endurvinnslutunnuna við Stjórnsýsluhúsið. Núna eru því eitt ker fyrir almennan, óflokkaðan úrgang og síðan annað jafnstórt ker fyrir flokkaðan úrgang.  

Í Stjórnsýsluhúsinu í Borgarnesi eru eftirtalin fyrirtæki.

Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen

Menningarfulltrúi Vesturlands

Héraðsdómur Vesturlands

Nepal hugbúnaður ehf.

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

Skrifstofuþjónusta Vesturlands

Símenntunarmiðstöð Vesturlands

Svæðisskrifstofa fatlaðra á Vesturlandi

Tak-Malbik

Sorpurðun Vesturlands

Staðardagskrár 21 skrifstofan

Umís ehf Environice 

Fasteignamat ríkisins

 

Myndir: Ragnhildur Jónsdóttir