Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
5. mars 2008 13:21

Almenn sorpflokkun hafin hjá starfsmönnum ráðhússins í Borgarnesi

Í síðustu viku bættust tvær endurvinnslutunnur frá Gámaþjónustunni í sorptunnuhornið við ráðhúsið í Borgarnesi. Almenn sorpflokkun er hafin hjá starfsmönnum ráðhússins og mun miðað við áhugann þess ekki langt að bíða að almennt sorp teljist þar til undantekningar.

Með því að bjóða upp á aðstöðu til sorpflokkunar við ráðhúsið er lagður grunnur að því að draga verulega úr því sorpmagni sem sent er til urðunar í Fíflholt.  Í endurvinnslutunnuna mega fara sjö flokkar úrgangs, þ.e. dagblöð, skrifstofupappír, fernur, bylgjupappír, málmar, rafhlöður og plastumbúðir. Flokkaði úrgangurinn er síðan fluttur til Hafnarfjarðar á flokkunarstöð Gámaþjónustunnar og sendur þaðan úr landi til endurvinnslu. Sumt af því sorpi er sent beint á ákveðinn endurvinnslustað en annað fer á evrópskan endurvinnslumarkað þar sem það gengur kaupum og sölum, enda um mikil verðmæti að ræða.   

 

Mynd: Ragneiður Stefánsdóttir