Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
8. apríl 2008 16:02

Gestir í heimsókn

Það var boðið upp á hörkuleik tveggja old boy‘s liða á sunnudaginn var í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi.

Þarna áttust við burtflognir Borgfirðingar sem snéru heim aftur um stund til að etja kappi við staðbundna borgfirðinga sem hafa æft körfubolta vel í vetur.

Þeir burtfluttu tóku upp á að æfa saman sér til gamans í Reykjavík fyrir nokkrum árum aðallega til að hittast í höfuðborginni og halda tengslum og spjalla í léttum leik.  Nú var komið að því að koma heima aftur og keppa við old boy‘s lið Skallagríms. 

Jafnt var á öllum tölum í þessum æsispennandi leik allt til enda en þá sigu burtfluttir fram úr og unnu leikinn með 6 stiga mun. 

Framtakið er gott og þegar búið að ákveða að hittast aftur.  Það væri óskandi að þessi fríði hópur ungra manna komi í framtíðinni heim aftur og er aldrei að vita nema að það gerist ef uppbygging heldur áfram  á svæðinu og atvinnutækifærum fjölgar.

 

Á myndinni eru Old boy‘s lið Skallagríms og fyrir aftan standa gestirnir af höfuðborgarsvæðinu sem margir hafa leikið með Skallagrím á árum áður.

i.j.