Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
10. apríl 2008 16:12

Fyrsta skóflustungan tekin að nýjum leikskóla Andabæjar á Hvanneyri

Föstudaginn 4. apríl síðastliðinn, var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum leikskóla Andabæjar við Arnarflöt 1 á Hvanneyri. Það voru elstu nemendur leikskólans sem tóku fyrstu skóflustunguna, en því næst tók starfsmaður Jörva efh. á Hvanneyri fyrstu vélskóflustunguna, með einn af gröfuvélum Jörva. Til gamans má geta þess að Valdís Magnúsdóttir leikskólastjóri reyndi á tækjahæfileika sína í framhaldinu með því að taka skóflufylli af jarðvegi með gröfunni. Nýji leikskólinn verður þriggja deilda leikskóli á einni hæð Stærð hússins verður 587 m2 en stærð lóðar er 5894 m2.

Verklok húss og hluta lóðar (1. verkáfangi) eru 15. desember 2008. Verklok seinni hluta lóðar (2. verkáfangi) eru 1. ágúst 2009.

Verkið var boðið út í febrúar síðastliðinn og voru tilboð opnuð mánudaginn 3. mars 2008 í Ráðhúsi Borgarbyggðar. Alls bárust 5 tilboð í verkið. Það var Byggingafélagið Nýverk í Borgarnesi sem átti lægsta tilboðið í verkið. Þann 28. mars sl. undirrituðu Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri og Ólafur Axelsson hjá Nýverki undir verksamning verksins, en hann hljóðar uppá 180.043.355 kr.