Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
9. júlí 2008 09:20

Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz í Borgarnesi

Laugardaginn 19.júl  Kl: 14:00 mun Leikhópurinn Lotta sýna Galdrakarlinn í Oz í Borgarnesi. Sýnt verður í Skallagrímsgarði. Frekari upplýsingar eru í síma 770-0403 og á www.leikhopurinnlotta.is.

 

Í sumar mun Leikhópurinn Lotta sýna undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz víðsvegar um landið en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir.

Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til landsins Oz og hvernig hún kynnist heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu og kemst í kast við vondu Vestannornina sem vill ná af Dórótheu silfurskónum sem henni eru gefnir. Spurning er bara hvort Galdrakarlinn ógurlegi í Oz getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar.

Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Ármann Guðmundsson og er hann jafnframt höfundur tónlistar og söngtexta ásamt þeim Baldri Ragnarssyni, Eggerti Hilmarssyni og Snæbirni Ragnarsyni en þeir eru allir meðlimir hljómsveitarinnar Ljótu hálfvitarnir.

Með helstu hlutverk fara Rósa Björk Ásgeirsdóttir sem Dóróthea, Baldur Ragnarsson sem Fuglahræðan, Sigsteinn Sigurbergsson sem Pjáturkarlinn, Anna Bergljót Thorarensen sem Ljónið og hundurinn Bella sem Tótó.