Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
9. ágúst 2008 19:25

Óvenjuleg sjón við Hvítárbrú

Harla óvenjuleg og sjón blasti við þeim sem voru viðstaddir 80 ára afmælishátíð Hvítárbrúarinnar við Ferjukot í dag, þegar Sæmundur Sigmundsson ók gömlu rútunni sinni (árgangi 1947) af stað yfir brúna. Í kjölfarið fylgdu svo fleiri fornbílar og gangandi fólk, en nokkrum sinnum var farið yfir þessa gömlu fallegu brú í blíðviðrinu. 

Að lokinni dagskrá þáði fólk veitingar við bæinn Ferjukot.

 

Fyrr um daginn var 90 ára innflutningsafmælis dráttarvélarinnar á Íslandi minnst í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Þar mátti sjá margar gamlar dráttarvélar og fornbílarnir stóðu einnig þar á hlaðinu áður en þeim var ekið að Hvítárbrúnni.

 

Það voru Vegagerðin, Sæmundur Sigmundsson, Landbúnaðarsafn Íslands og Veiði- og minjasafnið í Ferjukoti sem stóðu fyrir hátíðahöldunum sem voru afar vel sótt. 

 

Ljósmyndir: Guðrún Jónsdóttir