Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
22. desember 2008 16:43

Fjárhagsáætlun 2009

Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2009 var lögð fram til fyrri umræðu 11. desember s.l.  Hún verður tekin til seinni umræðu 8. janúar n.k. 

 

Í forsendum áætlunarinnar er gert ráð fyrir að útsvarstekjur lækki sem og framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.  Ráðgert er að skatttekjur sveitarfélagsins lækki um rúmlega 7% og verði 1663 milljónir.  Gert er ráð fyrir að meðalverðbólga á árinu verði 10% og íbúafjöldi verði óbreyttur.  Launanefnd sveitarfélaga hefur lokið kjarasamningum við nær alla hópa starfsmanna og leiða þeir til töluverðra hækkana á launagreiðslum eða um 20.300 kr. fyrir hvert stöðugildi á mánuði hjá flestum starfsmönnum.

 

Gjaldskrár sveitarfélagsins munu í flestum tilfellum hækka um 6 til 8%.  Gjaldskrár mötuneyta í leik- og grunnskólum munu hækka um 15% en almennar kostnaðarhækkanir hafa hins vegar verið mun hærri.

 

Til að mæta samdrætti í tekjum verður gætt ýtrasta sparnaðar í rekstri sveitarfélagsins og í einhverjum tilfellum verður þjónusta skert.  Í áætlun eru fjárveitingar til félagsþjónustu og fræðslumála hærra hlutfall af skatttekjum á næsta ári en á yfirstandandi ári, en þrátt fyrir það er lagt til að hagrætt verði í rekstri grunn- og leikskóla.  Þetta mun m.a. hafa áhrif á þjónustu leikskóla en gert er ráð fyrir að opnunartími verði styttur og að skólarnir loki kl. 16:15 í stað 17:15 eins og áður var.  Þetta er m.a. gert vegna þess að fækkað hefur þeim foreldrum sem nýta sér opnun leikskóla á milli 16:00 og 17:00.  Þessar breytingar munu koma til framkvæmda 1. apríl n.k. Þá er gert ráð fyrir að starfsmannafundir í leikskólum færist inn í dagvinnutíma sem þýðir að 7 daga á næsta ári verður skólunum lokað eftir hádegi.

 

Fjárveitingar til menningarmála, íþrótta- og æskulýðsmála, skipulags- og umhverfismála og reksturs sveitarstjórnar og skrifstofu munu lækka.  Megináhersla hefur verið lögð á lækkun vöru- og þjónustukaupa auk þess sem dregið verður úr yfirvinnu starfsmanna eins og kostur er.  Breytingar á opnunartímum og starfsemi einstakra stofnana mun í nokkrum tilfellum hafa áhrif á starfshlutfall einstakra starfsmanna.  Þetta á fyrst og fremst við um leikskóla- og tónlistarskóla.  Þegar hefur verið samþykkt að laun sveitarstjórnar og sveitarstjóra munu lækka um 10% auk þess sem styrkir til sveitarstjórnarmanna vegna aksturs falla niður.  Þessi breyting þýðir að dregið verður verulega úr kostnaði við rekstur sveitarstjórnar. 

 

Loks verður samdráttur í framkvæmdum sveitarfélagsins en gert er ráð fyrir að framkvæmt verði fyrir um 100 milljónir og eru framkvæmdir við leikskóla á Hvanneyri stærsti framkvæmdaliðurinn.  Hins vegar eru bundnar vonir við að heimild fáist til að byggja við Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi á árinu og yrði það afar stór framkvæmd sem að hluta yrði fjármögnuð af sveitarfélaginu.

 

Þrátt fyrir að gripið hafi verið til ýmissa sparnaðaraðgerða í rekstri Borgarbyggðar þá er gert ráð fyrir rúmlega 80 milljón kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins árið 2009.  Í áætlun er gengið út frá að ný lántaka og afborganir eldri lána verði nokkurn veginn í jafnvægi.

 

Ljóst er að einhverjar breytingar kunna að verða á áætlun á milli umræða í tengslum við ný fjárlög sem eru þessa dagana til umræðu í Alþingi.  Fjárlögin ráða miklu um rekstrarforsendur sveitarfélaga þar sem útsvarsprósenta og framlög Jöfnunarsjóðs hafa mikil áhrif á tekjur sveitarfélagsins.