Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
3. febrúar 2009 17:22

,,Íslensk byggðamál á krossgötum"

Byggðaráðstefna verður haldin í Borgarnesi 20. febrúar næstkomandi í samvinnu Sambands íslenskra sveitarfélaga, iðnaðarráðuneytis, samgönguráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Byggðastofnunar og landshlutasamtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.

 

Yfirskrift ráðstefnunnar er: „Íslensk byggðamál á krossgötum“.

Tilefni ráðstefnunnar er samþykkt landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um endurskoðun á byggðastefnu sambandsins og þátttaka landshlutasamtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra í „Opnum dögum“ Héraðanefndar ESB og Norðurslóðaframlagi þar.

 

Á ráðstefnunni verða evrópsk byggðamál í brennidepli með sérstakri áherslu á stöðu Norður-Evrópu. Fyrirlesarar frá byggðastofnun framkvæmdastjórnar ESB og Nordregio munu fjalla um þau mál. Stjórnskipulag og skilvirkni byggðaaðgerða bæði hér á landi og í nágrannalöndunum verða einnig til umfjöllunar, sjá nánar meðfylgjandi dagskrá.

 

Ráðstefnan er áhugaverð fyrir sveitarstjórnarmenn, starfsmenn landshlutasamtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunarfélaga, þingmenn, starfsmenn ráðuneyta og stofnana sem starfa að byggðamálum og málum þeim tengdum og aðra áhugasama um byggðamál, ekki síst í ljósi umræðna um hugsanlega aðild Íslands að ESB.

 

Áhugasamir eru beðnir um að skrá þátttöku á www.samband.is  fyrir 18. febrúar nk.