Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
17. mars 2009 10:12

Gullpenslarnir í Safnahúsi Borgarfjarðar

Litir jarðarinnar

Daði Guðbjörnsson

Laugardaginn 21. mars næstkomandi verður opnuð sýning nokkurra þekktra listamanna í Safnahúsi Borgarfjarðar en þeir mynda hópinn Gullpenslarnir. Helena Guttormsdóttir sér um sýninguna og útbýr kennsluefni henni tengdri. Sýningin stendur til 17. apríl. Gullpenslarnir er félagsskapur málara sem sýnt hefur bæði hér heima og erlendis. Þau hafa vakið verðskuldaða athygli og jafnvel verið kölluð landslið íslenskra málara. Á sýningunni í Safnahúsinu verða verk eftir þau Daða Guðbjörnsson, Helga Þorgils Friðjónsson, JBK Ransu, Jóhann Ludwig Torfason, Sigríði Ólafsdóttur og Sigurð Árna Sigurðsson.

Árið 2007 opnaði hópurinn sýninguna Indigo í Geðasafni. Þar voru sýnd málverk sem eiga það sameiginlegt að tengjast hinum sérstaka lit sem kallaður er indigó-blár. Málverkin eru af ólíku tagi en mynda mjög áhugaverða heild þar sem hinn einstaki blái litur er í öndvegi, hvort sem er í myndum Sigríðar Ólafsdóttur af föngum á Litla-Hrauni, fíngerðum plöntumyndum Eggerts Péturssonar eða myndasyrpu Jóhanns Ludwigs Torfasonar, leikföngum fyrir Indigobörn.

Safnahúsið býður alla velkomna á opnunina.