Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
25. mars 2009 10:00

Skólastjóraskipti í Grunnskóla Borgarfjarðar

Ásgerður Ólafsdóttir hefur tekið við stöðu skólastjóra við Grunnskóla Borgarfjarðar og mun gegna starfinu út þetta skólaár.  Ásgerður er menntaður sérkennari og hefur starfað sem slíkur bæði við grunn- og framhaldsskóla, auk þess sem hún hefur reynslu af stjórnunarstörfum og sem sérfræðingur á skrifstofu menntamála hjá menntamálaráðuneytinu. Ásgerður hóf störf við Grunnskóla Borgarfjarðar síðastliðið  haust sem sérkennari. Þá mun Aldís Eiríksdóttir taka við stöðu aðstoðarskólastjóra að nýju en hún hefur undanfarið kennt við skólann á Hvanneyri.

Magnús Sæmundsson sem tók við starfi skólastjóra síðastliðið haust, hefur látið af starfi við skólann að eigin ósk. Honum eru færðar bestu þakkir fyrir starf sitt við skólann, einnig Guðjóni Guðmundssyni íþróttakennara sem stýrt hefur skólanum á millli skólastjóraskipta. Þær Ásgerður og Aldís eru boðnar velkomnar til nýrra og breyttra starfa með góðri ósk um velfarnað í þeirra störfum.