Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
26. mars 2009 09:13

Könnun meðal íbúa í Borgarbyggð og Skagafirði

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst hefur sent frá sér könnun til íbúa austan Vatna í Sveitarfélaginu Skagafirði og í dreifbýli Borgarbyggðar auk foreldra þeirra barna úr Skorradalshreppi, Eyja- og Miklaholtshreppi sem eru í leik- eða grunnskólum á svæðinu. Könnunin, sem varðar ýmsa þætti þjónustu sveitarfélaganna skiptist í þrjá hluta. Í fyrsta og öðrum hluta eru foreldrar leik- og grunnskólabarna spurðir um ýmis atriði varðandi þjónustu, skólaakstur, tómstundir og vegalengdir í og úr skóla. Í þriðja hluta eru íbúar m.a. spurðir um viðhorf til almennings­samgangna, skólahverfa og búsetu.

 

Áður hefur verið unnið með rýnihópum í báðum sveitarfélögunum.

 

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst sér um framkvæmd og úrvinnslu könnunarinnar, en hún er unnin fyrir Borgarbyggð og Sveitarfélagið Skagafjörð með tilstyrk og að höfðu samráði við Byggðastofnun.

 

Markmið úttektarinnar er að kanna vilja íbúanna til þess hvernig þeir vilja sjá skipulag leik- og grunnskóla, íþrótta- og æskulýðsmála og almenningssamgangna þróast í tengslum við vaxandi háskólaþorp í dreifbýlissamfélögum sveitarfélaganna.