Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
30. apríl 2009 09:15

Tilkynning frá Ungmennafélaginu Skallagrími

Tilkynning vegna fyrirhugaðs átaks í öflun félagsmanna og leiðréttingar á félagaskrá Skallagríms.

Ungmennafélagið Skallagrímur er félag sem samanstendur af 6 deildum, badmintondeild, frjálsíþróttadeild, körfuknattleiksdeild, knattspyrnudeild,  sunddeild og leikdeild.

Markmið félagsins eru að vekja löngun félagsmanna til þess að stunda líkamsrækt og alhliða íþróttaiðkun, auka áhuga á hverskonar félags- og tómstundastarfi, vernda þjóðlega menningu og hvetja félagsmenn til að vinna að frelsi fyrir sig og aðra.

Til að ná markmiðum sínum stendur félagið fyrir námskeiðum, íþróttaæfingum og félagsstarfi.

Félagið hefur ekki innheimt félagsgjöld síðan 2002 og þaðan af síður endurnýjað félagatalið.

Ákveðið hefur verið að  gera bragabót á því og bjóða einstaklingum og fjölskyldum að gerast félagar í Skallagrími. Á næstu dögum munu félagar í Skallagrími ganga í hús og bjóða íbúum í Borgarnesi að gerast félagar. 

Félagsgjaldið er  1000 kr. fyrir fullorðna,   500 kr. fyrir þá sem eru 7- 16 ára og  500 kr fyrir  67 ára og eldri Gjaldið verður þó aldrei meira en 3000 kr. á fjölskyldu.

Ef þú þekkir einhvern burtfluttan Borgnesing sem vænt þykir um félagið og vill gerast félagsmaður má hinn sami hafa samband við stjórn Skallagríms á netfangið skallagrimur@skallagrimur.is Einnig verður hægt að skrá sig á heimasíðu Skallagríms www.skallagrimur.is

                                                   Aðalstjórn Skallagríms