Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
28. maí 2009 09:40

Tónleikar í Reykholtskirkju - breyting

Norsk og íslensk tónlist hljómar í Reykholtskirkju á Hvítasunnu

Hátíðakór frá Hálogalandi í  Noregi   og Háskólakórinn  munu halda sameiginlega tónleika í Reykholtskirkju 1.  júní, annan  í Hvítasunnu kl. 17.00

Athugið að áður auglýst þátttaka Kammerkórs Akraness fellur niður af óviðráðanlegum orsökum

 

Kirkjukórasamband Suður - Hálogalands í Noregi fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni var stofnaður hátíðakór med félögum úr  kórum biskupsdæmisins í Norlandsfylki, undir stjórn organistanna  Ingjerd Grøm og Øivind Mikalsen. Kórinn mun flytja verk eftir: Felix Mendelsohn Bartholdy  Kjell Mørk Karlsen,  Ivar Schonhovd Haugen, Wolfgang Plagge, Carl-Andreas Næss, Harald Gullichsen, Bjarne Sløgedahl, Frode Fjellheim og Ola Bremmnes. 

 

Stjórnandi Háskólakórsins er Gunnsteinn Ólason 

Efnisskrá Háskólakórsins nefnist Hrafnamál, enda kemur krummi víða við sögu í lögunum sem sungin eru. Þar getur að heyra íslensk þjóðlög og lög eftir íslensk tónskáld, svo sem Jón Leifs, Hjálmar H. Ragnarsson, Pál Ísólfsson og kórstjórann, Gunnstein Ólafsson. Háskólakórinn er skipaður 40 nemendum við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Kórinn hefur í gegn um tíðina haldið  tónleika víða um land og fer annað hvert ár í söngferð til útlanda. Á síðasta ári söng kórinn í Berlín og í stærstu borgum Póllands.