Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
29. september 2009 10:43

Fundur um örnefni og örnefnasöfnun á Vesturlandi

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Menningarráð Vesturlands og Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum gangast fyrir fundi um örnefni og örnefnasöfnun á Vesturlandi miðvikudaginn 30. september, kl. 13.00 í Snorrastofu, Reykholti.

Dagskrá:

  • Svavar Sigmundsson; Örnefni og örnefnasöfnun
  • Ragnhildur Helga Jónsdóttir; Örnefni í Andakíl
  • Sigurgeir Skúlason; Örnefnamyndavél fyrir Skorradal

 

Á fundinum mun Svavar Sigmundsson stofustjóri Örnefnasafns stofnunarinnar m.a. fjalla um mikilvægi örnefnasöfnunar, til hvers örnefnum hefur verið safnað, hver hefur haft örnefnasöfnun á hendi til þessa og hvernig staðið hefur verið að söfnun. Þá fer hann yfir stöðu þessara mála á Vesturlandi. Svavar ræðir síðan um hvernig hægt er að koma örnefnum á framfæri við almenning og reynir að svara því hvernig eigi að varðveita örnefni sem best til framtíðar í heimi mikilla breytinga á atvinnuháttum og hugsunarhætti í þjóðfélaginu og hver eigi að kosta þá varðveislu.

Ragnhildur Helga Jónsdóttir mun segja frá örnefnum í Andakíl og Sigurgeir Skúlason landfræðingur sem hefur ný lokið við örnefnamyndavef fyrir Skorradal mun útskýra hann á fundinum.

Fyrirspurnir og umræður að loknum inngangserindum.

Ókeypis er á fundinn. Allir velkomnir.