Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
26. október 2009 11:07

Endurreikningi afsláttar á fasteignaskatti lokið

Samkvæmt reglum Borgarbyggðar eiga tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem eiga lögheimili í Borgarbyggð rétt á afslætti af fasteignaskatti. Afslátturinn nær til íbúðarhúsnæðis sem viðkomandi býr sjálfur í.

Afslátturinn ræðst af öllum skattskyldum tekjum undanfarins árs, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjum. Hann er reiknaður til bráðabirgða við álagningu fasteignagjaldanna samkvæmt síðasta skattframtali. Þegar afslátturinn var reiknaður í upphafi árs 2009 lá fyrir skattframtal með tekjum ársins 2007 og var afslátturinn reiknaður út frá þeim.

Nú liggur fyrir staðfest skattframtal sem sýnir tekjur ársins 2008 og hefur afslátturinn verið endurreiknaður og leiðréttur miðað við þær. Í ljós kemur að í sumum tilfellum hefur afslátturinn verið ofreiknaður og þurfa gjaldendur þá að greiða til baka en í öðrum tilfellum hefur afslátturinn verið vanreiknaður og verður þá gjaldendum endurgreiddur mismunurinn. Í flestum tilfellum er afslátturinn óbreyttur frá því sem var við bráðabirgðaútreikning í upphafi árs. Þeim elli- og örorkulífeyrisþegum sem fá breytingu á afslættinum verður sent bréf varðandi niðurstöðu endurreikningsins ásamt greiðsluseðli þar sem það á við.

 

Tekjumörk vegna afsláttarins eru þessi:

Fyrir einstaklinga  (tekjur á árinu 2008):

- með tekjur allt að kr. 2.090.000  er veittur 100% afsláttur

- með tekjur á bilinu kr. 2.090.001 – 2.420.000 er veittur 75% afsláttur

- með tekjur á bilinu kr. 2.420.001 – 2.750.000 er veittur 50% afsláttur

- enginn afsláttur veittur til þeirra einstaklinga sem eru með tekjur yfir kr. 2.750.000 á árinu.

 

Fyrir hjón eða sambúðarfólk (tekjur á árinu 2008):

- með tekjur allt að kr. 2.915.000 er veittur 100% afsláttur

- með tekjur á bilinu kr. 2.915.001 – 3.245.000 er veittur 75% afsláttur

- með tekjur á bilinu kr. 3.245.001 – 3.850.000 er veittur 50% afsláttur

- enginn afsláttur er veittur til þeirra hjóna sem eru með tekjur yfir kr. 3.850.000 á árinu.