Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Félagsmiðstöðin Óðal

 

Gunnlaugsgötu 8b, Borgarnesi
Sími 437-1287
Netfang:sissi@borgarbyggd.is
Heimasíða: www.odal.borgarbyggd.is 

 

Ath.

Heimasíða Óðals hefur verið lögð niður í sparnaðarskyni.

Þróun hefur einnig verið sú að Facebook síður hafa tekið við þessu hlutverki og hýsa nú að mestu skilaboð, myndir og annað sem starfinu tilheyrir.

 

Slóðin mun í einhvern tíma opnast hér áfram sem undirsíða Borgarbyggðar og senn kemur hér lítill fréttasíða þar sem fyrst og fremst verða ganglegar upplýsingar fyrir foreldra og fréttir til þeirra úr starfi unglinga í Óðali.

 

 

Félagsmiðstöðin Óðal

Húsráð Óðals stjórnar innra starfi í Óðali. Í húsráði eru formenn nemendafélaga grunnskólanna í sveitarfélaginu ásamt gjaldkera og verslunarstjóra Óðals.

 

Félagsstarf er hluti af vali nemenda á unglingastigi skólans og er óhefðbundið nám sem fram fer í Óðali metið til einkunna í valkerfi skólans eins og tækja- og plötuþeytinám, stuttmyndagerð, tónlistarsköpun og leiklistarnám. Félagsstarf allra bekkja Grunnskólans í Borgarnesi fer fram í Óðali þ.á.m. opin hús, bekkjarkvöld og diskótek.

Náin samvinna er við nemendafélög Grunnskóla Borgarfjarðar sem koma á stærri viðburði í Óðali auk þess að koma í auknu mæli í dagstarf þar.  

 

Klúbbastarf NFGB: Billjardklúbbur, ljósmyndaklúbbur, tækja-og plötuþeytiklúbbur, tónlistarsköpun, myndbandagerð, borðtennis- og dartklúbbur svo eitthvað sé nefnt. Klúbbastarf fer fram virka daga frá kl. 14.00 - 18.00.

  

Óðal er opið:

Mánudaga - fimmtudaga 14.00-18.00 og föstudaga frá kl. 13.00 - 17.00 Allir unglingar í 8. - 10. bekk velkomnir.

7. bekkur velkomnir í Óðal tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum.

 

Opið hús á miðvikudagskvöldum:

Í vetur verður opið hús á miðvikudagskvöldum frá kl. 20.00 - 22.00

Hittumst öll í Óðali og eigum notalega stund saman.

 

Útvarp Óðal: Fm Óðal er sent út á tíðninni 101,3

Hið ómissandi og sívinsæla jólaútvarp verður sent út frá Fm Óðal eins og undanfarin ár. Jólaútvarpið verður í ár í loftinu frá kl. 10.00 mánudaginn 13. desember og líkur með lokahófi í beinni útsendingu föstudaginn 17. desember. Handritagerð flytjenda þátta er liður í íslenskukennslu skólans.

 

Æskulýðsballið: Þessi frábæra forvarnarball verður á sínum stað og nú fimmtudaginn 11. nóvember. Er þetta stærsta skemmtun og dansleikur sem haldin er fyrir unglinga á vesturlandi. Daganna á undan vinna unglingarnir setja unglingarnir sjálfir upp forvarnir og jafningafræðslu í félagsmiðstöðvum og skólum.

 

Bíó:  Kvikmyndasýningar eru ekki oft nú til dags vegna þess hve gömul tækin eru en þegar við sýnum mynd er það liður í félagsstarfi unglingana í Óðali.

 

Önnur starfsemi: Fjölmennum jarðarförum er sjónvarpað frá Borgarneskirkju í félagsmiðstöðina. Mikið er um fundi félagasamtaka og annað sem tilheyrir þeirra starfi í Óðali fyrir utan unglingastarfið sem þar fer fram. 

 

Starfsmaður: Sigurþór Kristjánsson ( Sissi ) s. 892 7970