 |
| Nýja húsnæðið í MB |
Mímir - ungmennahús
Ungmennahúsið er staðsett í Menntaskóla Borgarfjarðar
Ath.
Heimasíða Mímis hefur verið lögð niður í sparnaðarskyni.
Þróun hefur verið sú að Facebook síður hafa tekið við þessu hlutverki og hýsa nú að mestu skilaboð, myndir og annað sem starfi ungmenna tilheyrir.
Siðan mun opnast hér fyrst um sinn undir aðalvef Borgarbyggðar.
Ungmennahúsið Mímir er athvarf ungmenna á aldrinum 16 - 25 ára og rekið á vegum sveitarfélagsins. Þangað eru öll ungmenni á þessum aldri velkomin hvort sem þau eru í skóla eða ekki.
Húsráð.
Ungmennin sjálf halda utan um starfsemina og standa árlega fyrir menningar- og fræðslukvöldum sem hafa verið mjög vel sótt.
Í ungmennahúsinu er til staðar sjónvarp, sportrásir, DVD, pílukast og billjardborð sem hægt er að nota. Einnig er fullkomin æfingaaðstaða fyrir hljómsveitir og tónlistarfólk í húsinu.
Formaður húsráðs er Arnar Gylfi Jóhannesson.
Í vetur er opið þriðjudags, miðvikudags og fimmtudagskvöld frá kl. 20.oo til 23.oo.
Stjórn Mímis stjórnar innra starfi og stendur fyrir óvissu og æfintýraferð með fastagesti einu sinni á ári.