Efnistaka
Þessi síða veitir almennar upplýsingar um efnistöku og
hvar skuli leita leyfis vegna hennar með vísan í lög og reglugerðir
Lög og reglugerðir sem gilda um efnistöku
Sækja þarf um leyfi til sveitarstjórnar Borgarbyggðar fyrir allri efnistöku, í sveitarfélaginu, á landi, úr ám, vötnum, fjörum og af hafsbotni innan netlaga* samkvæmt lögum um náttúruvernd frá 1999 nr. 44 (sjá VI kafla laganna), samkvæmt skipulags- og byggingarlögum frá 1997 nr. 73 (sjá 27. grein um framkvæmdaleyfi), samkvæmt lögum um eiganrrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins frá 1990 nr. 73, samkvæmt lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu frá 1998 nr 57.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með efnistöku á landi eins og getið er í b-lið 6.gr og 2. og 3. mgr. 7 gr. laga um náttúruvernd sem getið er hér að ofan. Umhverfisstofnun er heimilt að krefjast þess að námuréttarhafi leggi fram tryggingu sem stofnunin telur fullnægjandi fyrir áætluðum kostnaði við eftirlit og frágang efnistökusvæða.
Nýjar reglur um efnistöku úr eldri námum
Samkvæmt breytinum á lögum um náttúruvernd er óheimilt að taka efni úr námum sem eru eldri en frá 1. júlí 1999 nema að fengnu framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar. Sjá kynningu á þeim lögum í 7 tbl. af Fréttabréfi Borgarbyggðar frá því í febrúar 2008 bls. 4
Framkvæmdir í ám og vötnum
Framkvæmdaleyfi þarf frá Fiskistofu vegna framkvæmda við ár og vötn. Hér má nálgast umsóknareyðublað, lög og reglugerðir á heimasíðu Fiskistofu. Bent er á að þrátt fyrir að hafa fengið framkvæmdaleyfi hjá Fiskistofu þarf einnig framkvæmdaleyfi viðkomandi sveitarstjórnar.
Umsókn um framkvæmdaleyfi
Með bréfi þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins vegna efnistöku þarf að fylgja áætlun námuréttarhafa um væntanlega efnistöku. Gerð skal ma.a. grein fyrir magni, stærð svæðis, gerð efnis, vinnslutíma og frágagni á efnistökusvæði. Um frágang efnistökusvæða er greint frá í 49. grein laga um náttúruvernd. Einnig gott að komi fram hvort tekið hafi verið efni á umræddu svæði áður og ef svo er þá hvenær.
Hér má nálgast umsóknareyðublað vegna efnistöku.
Hvenær þarf efnistaka að fara í umhverfismat?
Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum frá 2000 nr 106 og reglugerð um mat á umhverfisáhrifum (1123/2005) þarf efnistaka ávallt að fara í umhverfismat ef áætluð efnistaka raskar 50.000 fermetra svæði eða stærra eða er 150.000 rúmmetrar eða meiri. Einnig þarf að meta efnistöku með tilliti til eðlis, umfangs og staðsetningar ef áætluð efnistaka raskar 25.000 fermetra svæði eða stærra eða er 50.000 rúmmerar eða meiri og þar sem efnistaka fleiri en eins efnistökustaðar vegna sömu framkvæmda og á sama svæði ná samanlagt yfir 25.000 fermetra.
* Hugtakið netlög merkir sjávarbotn 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði landareignar.