Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður

Græn svæði í fóstur 

 

Finnst þér of sjaldan slegið í holtinu bak við hús?

Þyrfti að gróðursetja þar tré til skjóls og prýði.

Myndu blóm og blómstrandi runnar gefa lífinu lit? ...

Taktu opið svæði í fóstur!

 

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ákveðið að bjóða íbúum og samtökum þeirra að taka opin svæði í þéttbýli í fóstur. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að fegra sitt nánasta umhverfi á tímum þegar sveitarsjóður hefur ekki bolmagn til að sinna öðru en mikil­vægustu verkefnum.

 

Áhugasamir eru hvattir til sækja um til sveitarfélagsins.

Hægt er að sækja um með því að fylla út umsóknareyðublað sem finna má á heimasíðu Borgarbyggðar http://www.borgarbyggd.is eða með því að skrifa sveitarfélaginu bréf. Nánari upp­lýsingar gefur Björg Gunnarsdóttir umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi í síma 4337100 netfang: bjorg@borgarbyggd.is

 

Ýmsir áhugasamir íbúar sveitarfélagsins hafa að eigin frumkvæði þegar hafist handa við að prýða opin svæði í eigu eða umsjón sveitarfélagsins.  Þegar ekki er vitað um slík verk er alltaf sú hætta fyrir hendi að yfirvöld í sveitarfélaginu ákveði framkvæmdir sem ella hefði verið sleppt.

Þeir sem þegar hafa hafist handa við slík verkefni af eigin frumkvæði,

eru hvattir til að gera um þau samning.

 

Samningseyðublað.