Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
Afréttarnefnd Borgarhr., Stafholtst. og Norðurárd, fundur nr. 20

Dags. 1.8.2012

Fjallskilanefnd BSN

20. fundargerð

Fundur var haldinn í fjallskilanefnd Borgarhrepps, Ystu-Tungu og Norðurárdals. 

Miðvikudaginn 1. ágúst kl. 16:00  í ráðhúsi Borgarbyggðar,

Borgarbraut 14, Borgarnesi.

 

 

Mætt voru:

Aðalmenn:

Sigurjón Jóhannsson, formaður

Guðrún Fjeldsted

Hlynur Klemenzson

Jóhann Harðarson

 

Björg Gunnarsdóttir, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi, sat fundinn og ritaði fundargerð.

 

1.      Framkvæmd leita haustið 2012.

 

a)      Sigurjón lagði til að dagsverkið yrði hækkað í 10.000 kr. og gjald per kind hækkað til að mæta því. Ekki ljóst hvað það þarf að vera. Það kom fram tillaga frá öðrum nefndarmönnum um að hækka það í 12.000 kr.

Nefndin samþykkti að dagsverkið verði hækkað í 12.000 kr.

b)      Sigurjón lagði til að lagt verði á landverð í Norðurárdal eins og hefur verið gert á öðrum svæðum. Miklar umræður spunnust um það.

Samþykkt að leggja á jarðarverð á allar jarðir sem tilheyra þessari fjallskilanefnd í eitt ár til að greiða kostnað við viðhald mannvirkja. Jóhann sat hjá við ákvörðun um landverð.

c)      Matur í leitum

Ákveðið að hafa sama fyrirkomulag og í fyrra þ.e. matur verði í öllum leitum.

d)      Smölun á Bjarnadal.

Nefndin lagði til að Bjarnadalur og því sem honum tilheyrir verði smalaður miðvikudaginn 12. september. Bætt verði aðstaða við Bjarnadalsá til að reka að fé sem kemur af Bjarnadal.

e)       Rætt um réttir og viðhald þeirra.

Nefndin lagði til að skilarétt á Brekku í Norðurárdal verði aflögð sem slík frá og með næsta ári.

 

2.      Tillaga lögð fram.

 

Fundur í fjallskilanefnd Borgarhrepps, Stafholtstungna og Norðurárdals vestan Norðurár BSN, haldinn 1. Ágúst 2012 samþykkir eftirfarandi tillögu til breytinga á 15. Gr. Draga að fjallskilasamþykkt fyrir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshrepp.

 

Svignaskarðsrétt:

Leitardagar verði með viku millibili á afrétti Borgarhrepps.  

 

Nefndin samþykkti ofangreinda tillögu og leggur til að hún verði send til afréttanefnda Álftaneshrepps, Hraunhrepps og formanns nefndar um endurskoðun fjallskilasamþykktar.

 

 

3.      Önnur mál.

 

a)      Guðrún óskar eftir því að allar framkvæmdir á vegum nefndarinnar verði unnar í samráði við nefndarmenn og ekki verði farið í framkvæmdir án samþykkis hennar.

 

b)      Guðrún og Sigurjón fóru og skoðuðu hvað þyrfti að lagfæra við Skarðsrétt. Það eru þrjár milligerðir ónýtar í réttinni. Þær þarf að endurnýja í ár. Einnig eru steypuskemmdir á réttinni sem áríðandi er að kostnaðarmeta lagfæringar á. Reynt verður að laga í haust það sem mest er aðkallandi.   

 

c)      Rætt um að sauðfé verði að hafa aðgang að vatni í nátthaga.

 

d)      Rædd um að athugað verði með að leigja salerni í 1. leit.

 

 

Fundi slitið: 17:40.



Til baka