Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Afréttarnefnd Þverárréttar, fundur nr. 5

Dags. 23.8.2007

Afréttarnefnd Þverárréttarupprekstrar, fundur nr 5

 

Dags. 23 ágúst 2007

 

Fundur haldinn í afréttarnefnd Þverárréttarupprekstrar í Bakkakoti  23 ágúst 2007 og hófst hann kl 13:00.

 

Mættir voru: Kristján Axelsson ,Ólafur Guðmundsson ,Þórir Finnsson og Egill J Kristinsson.

 

Kristján setti fund og stjórnaði honum og Þórir ritaði fundargerð.

 

Dagskrá:

  1. Fundur settur
  2. Formannafundur afréttanefnda
  3. Álagning fjallskila 2007
  4. Önnur mál.

 

Formaður sagði frá formannafundi afréttanefnda og er vísað er til fundargerðar , sem hægt er að skoða á heimasíðu Borgarbyggðar .

 

Niðurjöfnun fjallskila 2007

Fjallskilum er jafnað niður á fjártölu,sem er 9651 kindur samkvæmt vortalningu.

Fjallskilakostnaður er 2.480.307.- sem gerir 257 kr á kind .

Fjallskilagjöld verða innheimt af bæjarskrifstofu Borgarbyggðar og er gjalddagi 1 nóvember en eindagi 20 nóvember.

Leitir.

Farið verður í fyrstu leit 14.september.

Fimmtudag 13.september fara 6 menn í Stafholtstungnaleið og smala Svínadal og fyrir vestan fjöll.  Farið verður í aðra leit föstudaginn 21 september.  Þriðju leit skal gera föstudaginn 28.september og laugardaginn 29 september.  Þó er heimild til tilfærslu á leitardögum þriðju leitar samkvæmt fjallskilasamþykkt Mýrasýslu.  Fjallkóngur þriðju leitar taki ákvörðun um breytingu, ef þurfa þykir.  Áríðandi  er að leitarmenn séu vel útbúnir í hlýjum og vatnsheldum fatnaði í skærum litum.

 

  Fjallkóngur í Tungnamannaleitum eru: 

1 leit : Kristján Axelsson Bakkakoti

2 leit: Jóhann Oddsson Steinum

3 leit: Viðar Guðmundsson Kaðalsstöðum

 Fjallkóngar í Þverhlíðingaleitum eru:

1 leit: Einar G Örnólfsson Sigmundarstöðum

2 leit: Grétar Þ Reynisson Höll

3 leit: Eysteinn Bergþórsson Höfða

 Fjallkóngur í Hvítsíðingaleitum eru:

1 leit: Þorbjörn Oddsson  Háafelli

2 leit: Guðjón Kjartansson  Síðumúlaveggjum

3 leit: Sigurður Gunnarsson  Bjarnastöðum

   Síðufjallsleit

1 leit: Ólafur Guðmundsson Sámsstöðum

2 leit: Ásgeir Ásgeirsson Þorgautsstöðum

 

Leitin er metin á 18.000

Þriðja leit til Stafholtstungna og Þverhlíðinga er metin á kr  7.200

Laugardagsleit á kr 7.200

Brekkurétt á kr 6.000

Nesmelsrétt á kr 6.000

Vökumaður  á kr 6.000

Dráttavél í 1 og 2 leit til Þverhlíðinga er metin á kr.12.000

Dráttavél með manni í Hvítsíðingaleitir er metin á kr. 21.000

Dráttarvél með manni í 3.leit til Þverhlíðinga er metin á kr. 18.000

 

Réttir

Fyrsta Þverárrétt verður mánudaginn 17.september og hefst kl 7

Önnur Þverárrétt verður mánudaginn 24.september og hefst kl 10

Þriðja Þverárrétt verður mánudaginn 1.október og hefst kl 10

Nesmelsrétt verður laugardaginn 8 september um miðjan dag.

 

Landeigendur og/eða umráðamenn jarða smali heimalönd fyrir þriðjurétt og færi óskilafé þangað.  Hestagirðingin verður fjárheld og því til afnota fyrir óskilafé.  Eigendur sjá sjálfir um flutning á fé, sem kemur fyrir í Dalasýslu eftir 17. september.

 

Skýringar á skammstöfum  á fjallskilaseðlum

1L undan: Menn sem fara til Tungnamanna fimmtudaginn 13.september og smala föstudag.

1L Lau:  Menn sem fara til Tungnamanna laugardaginn 15.september og smala þann dag.

2L Lau:  Menn sem fara til Tungnamanna laugardaginn 22.september og smala þann dag.

Hvs: Menn sem fara til Hvítsíðinga

Sth:  Menn sem fara til Tungnamanna

Þv:   Menn sem fara til Þverhlíðinga

 

 

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl 19:30

 

Þórir Finnsson

Ólafur Guðmundsson

Egill J Kristinsson

Kristján F Axelsson

 

 



Til baka