Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Afréttarnefnd Þverárréttar, fundur nr. 13

Dags. 9.6.2010

13. fundur Afréttarnefndar Þverárréttar var haldinn í Bakkakoti 9. júní 2010 og hófst hann kl.21:45.

 

Mættir voru: Kristján Axelsson

                     Ólafur Guðmundsson

                     Egill Kristinsson

                     Þórir Finnsson

 

Kristján setti fund og stjórnaði honum. Þórir ritaði fundargerð.

 

 

Dagskrá.

 

1.    Fyrst var rætt bréf varðandi Krók í Norðurárdaldags.18.02.2010. Þetta bréf er frá lögfræðiskrifstofunni Lögmenn Hafnarfirði þar sem tilkynnt er bann við upprekstri sauðfjár og beit sauðfjár á jörðinni Króki í Norðurárdal framan fjallgirðingu. Allir fundarmenn fengu eintak af bréfi þessu, einnig Páll Brynjarsson sveitarstjóri.

      Staðreyndin er sú að Brynjólfur Bjarnason bóndi í Króki seldi Upprekstrarfélagi Þverárréttar hluta jarðarinnar Króks, sem þá var afréttarmegin við afréttargirðingu Upprekstrarfélagsins.

      Fyrir kaupin hafði þessi hluti jarðarinnar verið nýttur sem afréttur, svo hefur verið óbreytt síðan.

      Kaupverð var innt af hendi í samræmi við kaupsamninginn. Hins vegar mun kaupsamningnum ekki hafa verið þinglýst.

      Þessi gjörningur var unninn 26.maí 1924.

            Lögfræðistofu Inga Tryggvasonar var falið að vinna í þessu máli og hefur hún     þegar sent Lögmönnum Hafnarfirði greinargott bréf og útskýrt málavexti.

 

2.    Lagt var fram bréf frá Agnari Þór Magnússyni og Birnu Tryggvadóttur í Staðarhúsum í Borgarhreppi.

      Erindi þessa bréfs er formleg umsókn til afréttarnefndar um leyfi til að sleppa fénu á afrétt Þverárréttar eins og hefur verið gert undanfarin vor og féð því hagvant þar.

      Afréttarnefndin gerir ekki athugasemdir við að féð í Staðarhúsum verði flutt á Holtavörðuheiði.

 

3.   Viðhald girðinga 2010.

      Farið verður með afréttargirðingunni innan fárra daga og ástand hennar kannað.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.23:45.

 

Þórir Finnsson                             

Ólafur Guðmundsson                 

Kristján F. Axelsson

Egill Kristinsson



Til baka