Afréttarnefnd Þverárréttar, fundur nr. 22
Dags. 13.6.2012
22. fundur Afréttarnefndar Þverárréttar var haldinn í Bakkakoti 13. júní 2012 og hófst kl 21:00.
Mættir voru; Kristján Axelsson, Ólafur Guðmundsson, Egill J. Kristinsson og Þórir Finnsson.
Kristján setti fund og stjórnaði honum. Þórir ritaði fundargerð.
Dagskrá.
1. Endurskoðun á fjárhagsáætlun 2012.
Í fjárhagsáætlun sem gerð var 13. Nóvember sl. Var reiknað með að arður af Norðurá yrði c.a 60.000 kr. á einingu samtals 3.100.000, en á aðalfundi Veiðifélags Norðurár í apríl sl. Var samþykkt að ekki yrði greitt meira en 45.000 kr. á einingu en það er skerðing upp á 764.500 kr. sem breytir tekjuáætlun Afréttsnefndar Þverárréttar verulega, en í gjaldliðum 8 og 9 er reiknað með óvissum útjgöldum sem gætu komið á móti fyrrnefndri skerðingu að einhverju leyti.
2. Erindi frá Borgarbyggð.
Fyrir fundinn lá bréf frá Sigurjóni Jóhannssyni formanni Fjallskilanefndar Borgarhrepps, Stafholtstungna og Norðurárdals vestan Norðurár.
Í þessu erindi er óskað eftir því að sveitarstjórn taki til afgreiðslu eftirfarandi erindi er varðar afréttarland á Bjarnadal.
Afréttarnefnd Þverárréttar láti koma með formlegum hætti hvort áhugi sé hjá sauðfjárbændum í Stafholtstungum að nýta afréttarland á Bjarnadal til sumarbeitar fyrir sauðfé. Eins og kunnugt er var land þetta nýtt til sumarbeitar af bændum í YstuTungu á sínum tíma, en flestar jarðir þar eru nú ýmist í eyði eða fjárlausar að mestu.
Allir nefndarmenn voru samþykktir því að athuga fyrir næsta vor hvort vilji væri að nýta u mrætt land.
3. Endurskoðun á fjallskilasamþykkt Mýra og Borgarfjarðarsýslna. Kristján sagði frá endurskoðun fjallskilasamþykktar en hann á sæti í þeirri nefnd. Endurskðun lýkur sennilega á næstu mánuðum.
4. Viðhald á girðingum og tímasetning um opnun afréttar. Stefnt er að því að fara með Dalagirðingunni um næstu helgi en viðgerð á girðingu í Hellistungum er lokið. Reiknað er með að leyfa upprekstur í afréttum 25. júní samkvæmt samþykkt afréttarnefndar frá 21. júlí 2010. Tilkynnt verður ef breyting verður á tímasetningu.
5. Önnur mál
Rætt um vandamál í Hvítsíðingaleitum og hvernig best verði leyst úr þeim. Undanfarin haust hafa verið erfiðleikar að koma safninu í gegnum hlið á fjallagriðingu. Rætt um að girða hólf neðan fjallgirðingar, sem safnið getur runnið í.
Fleira ekki gert en fundi skitið kl:23:45.
Þórir Finnsson
Ólafur Guðmundsson
Kristján F. Axelsson
Egill J. Kristinsson
Til baka