Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Eldriborgararáð, fundur nr. 7

Dags. 5.5.2010

Fundargerð

 

7. fundur Eldriborgararáðs Borgarbyggðar haldinn miðvikudaginn 5. maí 2010 kl.17.00

 

Fundarstaður: Samkomusalur Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi,

Fundinn sátu: Sveinn G. Hálfdánarson, Margrét Guðmundsdóttir, Bjarni Arason, Jenni R. Ólason,

Ragnheiður Ásmundsdóttir, Helga Guðráðsdóttir, Guðrún Eggertsdóttir og Hjördís Hjartardóttir.

Dagskrá:

 

1.        Staðfesting síðustu fundargerðar

2.       Fyrirhugaðar framkvæmdir við Dvalarheimili aldraðra í   Borgarnesi, Björn Bjarki Þorsteinsson

3.       Önnur mál

 

Sveinn setti fund og bauð velkominn Björn Bjarka Þorsteinsson.

 

Fyrst var tekin fyrir fundargerð síðasta fundar og var hún samþykkt.

 

Þá var tekinn fyrir annar dagskrárliður, kynning Björns Bjarka Þorsteinssonar á fyrirhuguðum breytingum við Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.  Hann greindi frá rekstri Dvalarheimilisins sl.ár.

Heimilismenn voru 53, 32 hjúkrunarrými, þar af 2 hvíldarrými og 21 dvalarrými. Það voru 70 starfsmenn í 40 stöðugildum og er nú stærsti vinnustaður í Borgarnesi.

Gott samstarf hefur verið við félagsstarfið og mikið samstarf við skólana, sem hafa komið í smærri hópum.  Einnig voru sendir út matarbakkar og hefur orðið mikil aukning á því.   Það voru 3 dagdvalarrými  frá  kl. 9-3.

Mikil þörf er á endurbótum á húsnæðinu.  Komin eru samningsdrög, sem bíða undirskriftar sem vonandi verður næstu daga.  Málið er hjá eftirlitsnefnd sveitarfélaga.  Viðbyggingin er2900 m2 og vandað mjög til undirbúnings.  Bjarki sýndi teikningar af fyrirhuguðu heimili og sagði fundarmönnum frá hvernig starfsemin er skipulögð í þessari nýju byggingu.

Sveinn var boðinn á aðalfund Dvalarheimilisins og fundarmenn lýstu ánægju með að Eldriborgararáð fylgdist með rekstri heimilisins og gott að efla tengslin milli Dvalarheimilisins og Eldriborgararáðs.  Hjördís vildi minna á að Dvalarheimilið væri með hvíldarinnlagnir og dvalarrými.

Jenni spurði hvort að við þessar breytingar verði ekki sami fjöldi og var og hvort þetta væri ekki aðeins bætt aðstaða .  Bjarki sagði svo vera og stjórnvöld teldu að dvalarrými  yrðu ekki heldur sjúkrasými .  Hjördís taldi að dvalarrýmum mundi fækka, e.t.v.  mundi fólk úr sveitum nýta sér það, fólk í Borgarnesi  yrði  frekar heima. Hann spurði einnig hvað nýbygging mundi kosta og hvað  mundi endurbætur kosta.

Bjarki sagði að nýbygging væri áætluð 900 miljónir og endurbætur  áætlaðar um 250 miljónir.  Fjármagna  á með 100% láni frá Íbúðalánajsóði, sem greiðist með húsaleigu frá ríkinu, sem er um 85% af kostnaði  og sveitarfélagið mundi greiða mismuninn.

Jenni spurði  hvort líkur væri á að það fengist eins góð verð ef skipt verði við heimamenn með bygginguna eins og ef það yrði útboð.  Allir voru sammála að skipt verði við heimamenn.

Hördís sagði að sveitarfélagið hafi staðið vel við þjónustu aldraðra.

Bjarni sagði að það vantaði millistig svo fólk með skerta starfsgetu geti verið heima.  Íbúð sem fólk getur búið í þótt starfsgeta sé skert, en gæti fengið þá þjónustu sem það þarfnast.

Bjarki sagði að gerð hafi verið teikning af húsi Dvalarheimilisins við Borgarbraut, þar sem íbúar gætu fengið þá þjónustu sem það óskar eftir.

Sveinn þakkaði Bjarka og lét í ljós ánægju með rekstur Dvalarheimilisins.

Önnur mál.

Sveinn ræddi um aðstöðu eldriborgara, ef salurinn á Borgarbraut 65 A yrði tekinn fyrir íbúðir. Rætt var um félagsaðstöðu eldriborgara og sveitarstjórn ætti að sjá eldriborgurum fyrir sal til fundarhalda.  Fundarmenn voru sammála og var eftirfarandi tillaga samþykkt:

 

Í tilefni af umræðu um húsnæði fyrir félagsaðstöðu Félags eldri borgara vill Eldriborgararáð ítreka þá skoðun sína að sveitarfélaginu beri að tryggja húsnæði fyrir slíka starfsemi.

 

Sveinn ræddi um að þetta væri síðasti fundur Eldriborgararáðs.  Hann sagði að þessi tími hafi farið í að móta starfið og taldi að þetta ráð væri komið til að vera og taldi að sveitarstjórn ætti að hafa samráð við Eldriborgarráð um málefni eldriborgara.  Hann þakkaði félagsmálastjóra gott samstarf.

 

Fundi slitið



Til baka