Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Fólkvangurinn Einkunnir, fundur nr. 19

Dags. 19.6.2008

Umsjónarnefnd fólkvangsins Einkunna

19. fundargerð

Fundur var haldinn hjá umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum 19. júní 2008 kl.16:00 í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi.

 

 

Mættir voru:

Nefndarmenn:

Finnur Torfi Hjörleifsson

Hilmar Már Arason

Sigríður Bjarnadóttir

 

Umhverfis- og kynningarfulltrúi:

Björg Gunnarsdóttir

 

 

  1. Ræktunaráætlun.

Friðrik Aspelund kynnir, fyrir hönd Skógræktarfélags Borgarbyggðar, drög að ítarlegri ræktunaráæltun en áður hafði verið kynnt.

 

  1. Framkvæmdir við Álatjörn.

Lögð fram drög að skipulagi við Álatjörn. Nefndin samþykkir að ganga frá samningi við Borgarverk vegna framkvæmda við Álatjörn. Sótt verður um framkvæmdaleyfi á næsta fundi Skipulags- og byggingarnefndar og einnig verður beiðni um framkvæmdaleyfi send Umhverfisstofnun. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júlí og ljúki á haustmánuðum 2008.

 

  1. Aðrar framkvæmdir í sumar.

Hilmar M. Arason fór yfir verkefni sumarsins og hvernig staða þeirra væri.

Lögð er áhersla á að koma upp 2-3 ruslafötum í Einkunnum í sumar.

 

  1. Uppsetning fræðsluskilta í Einkunnum.

Björg Gunnarsdóttir, umhverfis- og kynningarfulltrúi, sækir um leyfi til uppsetningu sex fræðsluskilta í Einkunnum  fyrir hönd Borgarbyggðar.

Samþykkt

 

  1. Hringsjá.

Finnur Torfi Hjörleifsson sagði frá ferð sinni með Jakobi Hálfdánarsyni til að sýna honum væntanlegt stæði fyrir Hringsjánna sem á að reisa þar sumarið 2010.

 

  1. Fundartími.

Ákveðið að hafa fundi 3. þriðjudag í hverjum mánuði og að næsti fundur yrði 19. ágúst.

 

  1. Önnur mál.

Óskað er eftir að Björg Gunnarsdóttir ræði við Sigurjón Jóhannsson dreifbýlisfulltrúa varðandi reglur þær sem gilda í fólkvangnum og benda á að sérstakt leyfi umsjónarnefndarinnar þarf fyrir veiðum í fólkvangnum.

 

Fundi slitið kl. 17:00



Til baka