Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Fólkvangurinn Einkunnir, fundur nr. 12

Dags. 12.6.2007

Umsjónarnefnd fólkvangsins Einkunna

12. fundargerð

Fundur var haldinn hjá stórn fólkvangsins Einkunna 12. júní kl. 17:30

í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi.

 

 

 

 

Mættir voru:

Nefndarmenn:

Finnur Torfi Hjörleifsson

Hilmar Már Arason

Sigríður Bjarnadóttir

 

Umhverfisfulltrúi:

Björg Gunnarsdóttir

 

 

 

  1. Deiliskipulag.

Lagt fram skipulagskort þar sem tekið hefur verið tillit til þeirra ábendinga sem komu fram á fundi umsjónarnefndarinnar í síðustu viku, þann 5. júní 2007.

 

Deiliskipulagið, eins og það kemur fram á uppdrætti og meðfylgjandi greinargerð er samþykkt með þeim breytingum sem formaður fyrir hönd nefndarinnar hefur fært inn í greinargerðina. Deiliskipulaginu er vísað til byggðaráðs og skipulags- og bygginganefndar til umsagnar.  

 

Sigríður Bjarnadóttir ítrekar bókun sína frá fundi nefndarinnar 5. júní 2007 sem var eftirfarandi: Kannað verði betur hvort lagður verði reiðvegur niður með Háfslæknum vestan við Nyðri- og Litlu Einkunnir og biður gjarnan um betri rök fyrir því að hún ætti ekki að vera þar. Að kannaður verði munurinn á því hvort hann liggi handan lækjar í Tungulækjar landi eða innan fólvangs með tilliti til lífríkis.

 

Sigríður Bjarnadóttir leggur jafnframt fram eftirfarandi bókun: Ég tel að göngustígar og reiðvegir fari vel saman, en á þó við að það sé sitt hvor stígurinn. Ég vil vísa til þessa að reiðleiðir og göngustígar hafa verið lagðir um fleiri fólkvanga og þjóðgarða og fara vel saman. Auk þess tel ég að ríðandi umferð trufli ekki dýralíf frekar en gangandi umferð.

 

Formaður, Hilmar Már Arason og Finnur Torfi Hjörleifsson vísa til bókunar formanns frá fundi nefndarinnar 5. júní 2007 sem var eftirfarandi: Formaður, Hilmar Már Arason telur að rökin fyrir að hafna reiðvegi séu að vernda mýri og vernda lífverur. Ekki fari vel saman reiðvegur og göngustígur. Einnig að reiðleiðin yrði of nálægt fyrirhuguðum náttúruskóla.

 

Finnur Torfi óskar eftir að þetta sé bókað: Ég tel að nefndin hafi komið verulega til móts við þarfir hestamanna í skipulagi fólkvangsins. Samkvæmt skipulaginu verða reiðleiðir nú mun lengri og fjölbreyttari en þær hafa verið á þessu svæði. Ég tel að hestamönnum sé ekki brýn nauðsyn á að fá reiðleið meðfram Háfslæk, vestan Einkunna.

 

  1. Önnur mál.

Á síðasta fundi var formanni falið að hafa samband við Sparisjóð Mýrasýslu til að fá frest á gerð bæklings og hefur nefndin fengið frest til að ljúka verkinu. 

 

 

Fundi slitið 19:15



Til baka