Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 238

Dags. 19.7.2012

238. fundur Byggðarráðs Borgarbyggðar haldinn  í fundarsal í ráðhúsi að Borgarbraut 14 í Borgarnesi, fimmtudaginn 19. júlí 2012 og hófst hann kl. 13:00


Fundinn sátu:
Björn Bjarki Þorsteinsson formaður, Ingibjörg Daníelsdóttir varaformaður, Finnbogi Leifsson aðalmaður, Geirlaug Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi, Páll Snævar Brynjarsson sveitarstjóri, Eiríkur Ólafsson skrifstofustjóri og Ásthildur Magnúsdóttir fræðslustjóri.

Fundargerð ritaði:  Eiríkur Ólafsson, skrifstofustjóri

 

Dagskrá:

 

1. 1207016 - Kærunefnd útboðsmála - kæra á útboði á skólaakstri

Framlögð niðurstaða Kærunefndar útboðsmála dags. 09.07.12 á kröfu Davíðs Ólafssonar og Einars S. Traustasonar á samningsgerð vegna útboðs Borgarbyggðar á skólaakstri og akstri í tómstundastarf verði stöðvuð.
Nefndin hafnar kröfunni m.a. vegna þess að kærufrestur var liðinn.

2. 1207021 - Kærunefnd útboðsmála - kæra á útboði á skólaakstri

Framlögð kæra Lex lögmannsstofu f.h. Sturlu Stefánssonar til Kærunefndar útboðsmála dags. 16.07.12 þar sem kærð er ákvörðun Borgarbyggðar að ganga til samninga við Jónas Þorkelsson um leið nr. 1 í framhaldi af útboði á skólaakstri og akstri í tómstundastarf í Borgarbyggð.
Einnig er þess krafist að samningsgerð verði stöðvuð þar til endanlega hefur verið leyst úr kærunni.

 

Byggðarráð samþykkti að stöðva vinnu um stundarsakir við samningsgerð í tengslum við útboðið þar til ákvörðun Kærunefndar útboðsmála varðandi stöðvunarkröfuna liggur fyrir.
Byggðarráð leggur hins vegar mikla áherslu á að afgreiðslu nefndarinnar verði hraðað svo sem kostur er.

Samþykkt að fela Juris lögfræðistofu að taka saman greinargerð vegna málsins.

3. 1207022 - Kærunefnd útboðsmála - kæra á útboði á skólaakstri

Framlagt bréf Kærunefndar útboðsmála dags. 16.07.12 ásamt kæru Sigurðar Inga Þorsteinssonar á útboði á skólaakstri og akstri í tómstundastarf í Borgarbyggð.
Kærandi krefst stöðvunar útboðs/samningsgerðar á meðan unnið er úr kærunni.

 

Byggðarráð samþykkti að stöðva vinnu um stundarsakir við samningsgerð í tengslum við útboðið þar til ákvörðun Kærunefndar útboðsmála varðandi stöðvunarkröfuna liggur fyrir.
Byggðarráð leggur hins vegar mikla áherslu á að afgreiðslu nefndarinnar verði hraðað svo sem kostur er.

Samþykkt að fela Juris lögfræðistofu að taka saman greinargerð vegna málsins.

4. 1207018 - Kvörtun um ólögmætt samráð í tengslum við skólaakstursútboð

Framlagt bréf Samkeppnisstofnunar dags. 11.07.12 þar sem farið er fram á umsögn Borgarbyggðar vegna kvörtunar um ólögmætt samráð í tengslum við útboð á skólaakstri og akstri í tómstundastarf.

Samþykkt að fela Juris lögfræðistofu að taka saman greinargerð vegna málsins.

5. 1205008 - Stefnumótun í íþrótta- og tómstundastarfi.

Samþykkt var að skipa Sigríði G. Bjarnadóttur, Jónínu Ernu Arnardóttur og Pál S. Brynjarsson fulltrúa Borgarbyggðar í nefnd til að vinna með Ungmennasambandi Borgarfjarðar að stefnumótun í íþrótta- og æskulýðsmálum.

 

Ásthildur vék af fundi.
Björn Bjarki vék af fundi og tók Dagbjartur Arilíusson sæti hans á fundinum.

6. 1207009 - Rétt í Skorradal

Framlagt bréf Skorradalshrepps dags. 05.07.12 varðandi byggingu nýrrar réttar að Horni í Skorradal. Farið er fram á að Borgarbyggð skipi fulltrúa í nefnd til að sjá um framkvæmdir við réttina.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að ræða við oddvita Skorradalshrepps um erindið.

7. 1207001 - Hesthús við Lónaborg

Rætt um hesthúsbyggingu við Lónaborg.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að ræða við formann afréttarnefndar Þverárréttarupprekstrar um málið.

8. 1207020 - Yfirlit yfir kostnað sveitarfélagsins vegna refa- og minkaveiða árið 2012

Framlagt bréf Bjargar Gunnarsdóttur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa dags. 13.07.12 þar sem gerð er grein fyrir kostnaði Borgarbyggðar við refa- og minkaveiði það sem af er á árinu 2012.

 

Rætt um beiðni Rúnars Hálfdánarsonar og Ingu Helgu Björnsdóttur á Þverfelli um aukafjárveitingu til refaveiði.
Byggðarráð getur ekki orðið við beiðninni.

9. 1207019 - Gæludýraeftirlit á Íslandi.

Framlagt bréf Bjargar Gunnarsdóttur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa dags. 13.07.12 með upplýsingum um kostnað og tekjur sveitarfélaga vegna gæludýraeftirlits.

 

Samþykkt að sameina störf gæludýraeftirlitsmanna í Borgarbyggð í eitt starf og var umhverfis- og skipulagssviði heimilað að ráða í 50% starf gæludýraeftirlitsmanns.

10. 1206068 - Flutningur á fé í afrétt Andkílinga og Lunddælinga

Framlagt bréf Óskars Halldórssonar dags. 09.07.12 varðandi flutning fjár í afrétt Andkílinga og Lunddælinga

11. 1207024 - Umsókn um stofnun lóðar

Framlögð umsókn Ásthildar Sigurðardóttur um stofnun 1,16 ha lóðar úr landi Stóru-Grafar í Borgarbyggð.

Byggðarráð samþykkti að lóðin verði stofnuð.

12. 1207010 - Fundargerðir bygginganefndar í júní-júlí

Framlagðar fundargerðir bygginganefndar hjúkrunarálmu við Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi dags. 20.06.12, 27.06.12 og 04.07.12.

 

Byggðarráð óskar heimilisfólki, starfsfólki og stjórn Brákarhlíðar til hamingju með nýja og glæsilega hjúkrunarálmu.

 

Byggðarráð leggur áherslu á að lokaúttekt á framkvæmdum fari fram sem fyrst.

13. 1207025 - Oddstaðarétt

Finnbogi ræddi um byggingu Oddstaðaréttar.
Samþykkt að óska eftir yfirliti um stöðu og frekari framkvæmdir.

14. 1207003 - Fundargerð 798. fundar 29. júní 2012

Framlögð fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 29.06.12.

15. 1206052 - Fundargerð stjórnarfundar SSV 11.maí 2012

Framlögð fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi dags. 11.05.12.
 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30



Til baka