Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
Eldriborgararáð, fundur nr. 9

Dags. 11.1.2011

9. fundur Eldriborgararáðs Borgarbyggðar haldinn í Ráðhúsi Borgarbyggðar þriðjudaginn 11. janúar 2011 kl. 15:00.

 

Fundinn sátu:Bjarni Arason, Jenni R. Ólason, Sigurður Helgason, Ragnheiður Ásmundardóttir, Helga Guðráðsdóttir og Guðrún Eggertsdóttir og Vigdís Sigvaldadóttir.

Af hálfu starfsmanna: Páll S. Brynjarsson og Hjördís Hjartardóttir.

 

1.         Sveinn Hálfdánarson hefur sagt sig úr ráðinu og varaformaður Sigurður Helgason           tekið við embætti hans. Guðrún Eggertsdóttir kjörin varaformaður.

 

            Sveini eru þökkuð vel unnin störf.

 

2.         Farið yfir stöðu mála.

            Páll Brynjarsson sveitarstjóri mætti á fundinn undir þessum lið til umræðu um kosningu og fyrsta fundarboð eldriborgararáðs, - en í raun gafst ráðinu ekki tími til að setja sig inn í og bregðast við breytingum í tengslum við fjárhagsáætlun,  s.s. gjaldskrárhækkanir. Einnig rætt um hvort greiða skuli fyrir setu í ráðum eins og eldriborgararáði og ferðakostnað.

 

            Sigurður Helgason lagði fram eftirfarandi tillögu til ályktunar:

Fundur Eldriborgararáðs Borgarbyggðar 11. janúar 2011.

Úrdráttur úr fundargerð sveitarstjórnar 9.12.2010.

            "Lögð var fram tillaga að verðskrá íþróttamiðstöðva í Borgarbyggð.

            Sigríður lagði fram svohljóðandi breytingartillögu:

            "Undirrituð leggja til að eldri borgarar með lögheimili í sveitarfélaginu fái sérstök            sundkort í íþróttamiðstöðvar endurgjaldslaust."

            Sigríður Guðbjörg Bjarnadóttir     (sign)

            Geirlaug Jóhannsdóttir       (sign)

 

            Breytingartillagan var felld með 5 atkv. gegn 4 (GJ, SGB, JFS, ID).

            Tillagan um verðskrá var samþykkt samhljóða."

 

Eldriborgararáð lýsir óánægju sinni með afgreiðslu sveitarstjórnar á verðskrá íþróttamiðstöðva og skorar á sveitarstjórn Borgarbyggðar að endurskoða afstöðu sína til ofangreindar breytingartillögu þeirra Sigríðar og Geirlaugar við verðskrá íþróttamiðstöðva og samþykkja hana. . Samþykkt samhljóða.

 

3. Ráðið leggur til að Margrét Guðmundsdóttir verði fengin til að vera rödd eldriborgararáðs í tilefni afmælis DAB. Ragnheiður Ásmundardóttir til vara.

 

4. Félagsmálastjóra falið að senda erindi til byggðaráðs og fara fram á greiðslur til meðlima eldriborgararáðs fyrir fundarsetur og akstur

 

5.  Á síðasta fundi var félagsmálastjóri falið að afla upplýsinga um hversvegna snjóbræðslukerfi á hlaupabrautinni á íþróttavellinum er ekki virkt. Það er vegna sparnaðar.

 

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 16:25



Til baka