Afréttarnefnd Norðurárdals, fundur nr. 3
Dags. 30.7.2002
Fundur var haldinn í Borgarnesi af afréttarnefnd Norðurárdals (Ystutungu Stafholtstungna og Norðurárdals vestan Norðurá) þriðjudaginn 30. júlí 2002.
Mættir voru:
Aðalfulltrúar: Sverrir Guðmundsson
Þórhildur Þorsteinsdóttir
Brynjar Sæmundsson
Þjónustufulltrúi: Sigurjón Jóhannsson
Sigurjón Jóhannsson setti fund, og lýsti eftir tilnefningum um formann. Kom nefndin sér saman um að Sverrir Guðmundsson Hvammi yrði formaður nefndarinnar og Þórhildur Þorsteinsdóttir yrði ritari nefndarinnar.
Rætt var um starf nefndarinnar og vandamál í sambandi við smalamennskur á þessu svæði. Ljóst er að mörg vandamál eru sem þarf að leysa. Rætt um að hafa samráðsfund með Dalamönnum fyrir haustið, eða fyrir 20. ágúst. Fyrirhugað að hafa fund sem fyrst aftur í nefndinni.
Fundi slitið.
Þórhildur Þorsteinsdóttir
ritari.
Til baka