Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
Fyrri mánuður
júní 2013
Næsti mánuður
Afréttarnefnd Norðurárdals, fundur nr. 5

Dags. 5.9.2004

 

Fundur  var haldinn hjá afréttarnefnd Norðurárdals, Ystutungu Stafholtstungna  og Norðurárdals vestan Norðurá.

Var fundurinn haldinn að Hvammi Norðurárdal 5. september 2004 kl. 21:00.

Mætt voru á fundinn aðalfulltrúarnir:  Sverrir Guðmundsson, Brynjar H. Sæmundsson og Þórhildur Þorsteinsdóttir.

 

Efni fundarins var að leggja á til fjallskila.

Til fjallskila koma 1163 kindur vestan Norðurár og 19 kindur í Ystutungu Stafholtstungna.

Álagning er reiknuð 255 kr. á kind og 3% gjald á fasteignamat lands bújarða og einnig þær sem eru í eyði.

Dagsverkið er metið á kr. 6.000

Tilhögun leita og rétta haustið 2004 er samkvæmt fjallskilasamþykkt fyrir Mýrasýslu, að öðru leyti en því að þriðja leit hefur verið færð fram um eina viku eins og s.l. ár.

 

Fyrsta leit fer fram laugardaginn 18. september.

Önnur leit fer fram laugardaginn 2. október.

Þriðja leit fer fram laugardaginn 15. október.

 

Fyrsta Brekkurétt verður sunnudaginn 19. september,

Önnur Brekkurétt sunnudaginn 3. október.

Þriðja Brekkurétt sunnudaginn 16. október.

 

Fé úr útréttum verður flutt að Brekku og þangað verða eigendur að vitja þess.

 

Réttarstjóri í öllum réttum verður Þórður á Brekku.

Leitarstjóri í öllum leitum vestan Bjarnadalsár verður Gunnar á Brekku.

Leitarstjóri í öllum leitum austan Bjarnadalsár verður Sverrir í Hvammi.

Leitarstjóri í öllum leitum á Bjarnadal verður Brynjar á Borgum.

 

Heimalönd smalist til II. og III. réttar nema heimalönd Jafnaskarðs og Múlakots sem smalist 19. sept.. og 2. okt. sem eru sunnudagar, í samráði við leitarstjóra vestan Bjarnadalsár.

.

Að endingu skrifaði nefndin svohljóðandi bréf til þjónustufulltrúa Borgarbyggðar Sigurjóns Jóhannssonar:

Þar sem álögð fjallskil í Ystutungu duga ekki til að leita Bjarnadalsafrétt, teljum við að Borgarbyggð beri að skaffa menn eins og hér segir:

                        7 menn í fyrstu leit

                        6 menn í aðra leit

                        Seinni leitir eftir þörfum.

                                                            Afréttarnefnd vestan Norðurár

                                                            (undirritað af öllum nefndarmönnum).

 

Að endingu urðu umræður um framkvæmd leita á þessu svæði og voru fundarmenn sammála um að æ erfiðara væri að standa að samalmennskum á þessu svæði, þar sem ekki væri um samsmölun með Dalamönnum að ræða í  fyrstu leit.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 23.00

 

Þórhildur Þorsteinsdóttir

fundarritari.



Til baka