Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 142

Dags. 26.1.2010

Þriðjudaginn 26. janúar 2010 kom byggðarráð Borgarbyggðar saman til fundar kl. 20:00 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mættir voru:

               Aðalfulltrúar:             Sveinbjörn Eyjólfsson

                                               Finnbogi Rögnvaldsson

                                               Bjarki Þorsteinsson

               Sveitarstjóri:             Páll S. Brynjarsson

               Skrifstofustjóri:         Eiríkur Ólafsson sem ritaði fundargerð

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.         Þriggja ára áætlun Borgarbyggðar 2011-2013

Rætt um þriggja ára áætlun fyrir árin 2011-2013.

 

2.         Skólamál

Sveitarstjóri lagði fram tillögu að frekari vinnu við endurskoðun á skólamálum og samráði við hagsmunaaðila.

Jafnframt voru framlagðar ályktanir frá yfirstjórnarfundi við Landbúnaðarháskóla Íslands og frá skólaráði Grunnskóla Borgarfjarðar sem og undirskriftarlisti frá íbúum í skólahverfi Varmalandsskóla.

 

3.         Laugargerðisskóli.

Framlagður samningur um slit á byggðasamlagi um Laugargerðisskóla og þjónustusamningur við Eyja-Miklaholtshrepp um skólavist barna úr gamla Kolbeinsstaðahreppi í Laugargerði.

Byggðarráð samþykkti samningana.

 

4.         Fráveitumál

Sveitarstjóri sagði frá viðræðum við Orkuveitu Reykjavíkur um framkvæmdir við fráveitu.

 

5.         Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi

Sveitarstjóri greindi frá stöðu mála í viðræðum sveitarfélaga við félags- og tryggingarráðuneytið um uppbyggingu dvalar- og hjúkrunarheimila.

 

6.         Kjörstaðir í Borgarbyggð

Framlögð fundargerð frá fundi í yfirkjörstjórn Borgarbyggðar dags. 14.01.'10 þar sem veitt var umsögn um breytingar á kjördeildum í Borgarbyggð

Samþykkt var að leggja niður Lyngbrekkukjördeild og hún sameinuð Borgarneskjördeild og einnig verði Brúaráskjördeild lögð niður og sameinuð Kleppjárnsreykjakjördeild.

 

7.         Dansstúdíó í Brákarey

Framlagt minnisblað frá sveitarstjóra vegna erindis frá Evu K. Þórðardóttur um aðstöðu fyrir dansstúdíó í Brákarey.

 

8.         Ársskýrsla Slökkviliðs Borgarbyggðar

Framlögð ársskýrsla 2009 fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar. 

Jafnframt var framlagt bréf slökkviliðstjóra vegna vatnsmála í Reykholtsdal.

Samþykkt að senda bréfið til Orkuveitu Reykjavíkur.   

 

9.         Ársskýrsla félagsþjónustu Borgarbyggðar

Framlögð ársskýrsla félagsþjónustu Borgarbyggðar.

 

10.       Eftirlit með fjárhagsáætlun

Framlagt minnisblað um eftirlit með fjárhagsáætlun árins 2010.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að láta hefja eftirlit í takt við innihald minnisblaðsins með áorðnum breytingum.

 

11.       Erindi frá sveitarstjórn

Sveitarstjórn vísaði eftirtöldum liðum úr fundargerð byggðarráðs frá 06.01.'10 til frekari umfjöllunar í byggðarráði:

            1. lið um félagsþjónustu

            1. lið um menningarmál

            1. lið um íþrótta- og æskulýðsmál

            1. lið um framkvæmdasvið og umhverfismál

            1. lið um sameiginlegan kostnað

 

Samþykkt var að fela sveitarstjóra að vinna áfram að þessum málum m.a. að óska eftir fundi með bankastofnunum um lánamál.  

 

12.       Atvinnumál

Rætt um Stefnumót 2010 sem fram fer 30. janúar n.k. í Borgarnesi.

 

13.       Leikskólinn á Varmalandi

Á fundinn mættu fulltrúar frá foreldrafélagi leikskólans á Varmalandi til viðræðna við byggðarráð um framtíð leikskólans.

 

14.       Kosning varamanns í fræðslunefnd

Samþykkt var að Brynjólfur Guðmundsson verði varamaður af hálfu Borgarlistans í fræðslunefnd en það láðist að kjósa í þetta embætti á síðasta fundi sveitarstjórnar þegar gerðar voru breytingar á skipun nefnda.

 

15.       Framlögð mál

a.         Bréf frá Orkuveitu Reykjavíkur vegna kaupa á eignarhluta ríkisins í HAB

b.         Fundargerð frá stjórnarfundi í OR 30.12. 2009

c.         Fundargerð frá stjórnarfundi Faxaflóahafna 15.01. 2010.

 

 

Fleira ekki gert.  

Fundargerðin upplesin og samþykkt .

Fundi slitið kl. 22,30.



Til baka