Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Fræðslunefnd, fundur nr. 62

Dags. 4.2.2010

FUNDARGERÐ

 

62. fundar fræðslunefndar

 

Fimmtudaginn 04. febrúar 2010 kom fræðslunefnd Borgarbyggðar saman til fundar kl. 16:00 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mætt voru:

 

Aðalfulltrúar:         Finnbogi Leifsson                            

                               Finnbogi Rögnvaldsson                                

                               Rósa Marinósdóttir

                               Torfi Jóhannesson  

Varafulltrúi:            Haukur Júlíusson

Fræðslustjóri:        Ásthildur Magnúsdóttir                                

 

 

Fræðslustjóri skrifaði fundargerð.

 

Á fundinn mættu Pétur Davíðsson fulltrúi Skorradalshrepps, Ásgerður Ólafsdóttir fulltrúi skólastjóra, Ása Erlingsdóttir og Kolfinna Njálsdóttir fulltrúar kennara, Alda Baldursdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Valdís Magnúsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Sjöfn Vilhjálmsdóttir og Guðbjörg Hjaltadóttir fulltrúar leikskólakennara, Hrafnhildur Tryggvadóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Theodóra Þorsteinsdóttir skólastjóri Tónlistarskólans, Ólafur Flosason fulltrúi tónlistarkennara og Hulda Hrönn Sigurðardóttir fulltrúi foreldra barna í Tónlistarskólanum.

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.        Kosning formanns og varaformanns

Páll Brynjarsson sveitarstjóri kom á fundinn og stýrði kjöri formanns og varaformanns. Torfi Jóhannesson var kjörinn formaður. Finnbogi Leifsson var kjörinn varaformaður.

Páll vék af fundi.

 

2.        Staða skólamála

Torfi kynnti ýmsar tölulegar staðreyndir um skólastarf í Borgarbyggð.

Fulltrúar skólastjóra sögðu frá stöðu skólamála.

Valdís fulltrúi leikskólastjóra sagði frá því að skólastarf gengi almennt vel í öllum leikskólum. Leikskólastjórar hafa áhyggjur af komandi vori vegna niðurskurðar í starfsmannamálum. Rætt um að leikskólastjórar geri tillögur að verklagsreglum um það hvernig bregðast eigi við verulegum forföllum starfsmanna.

Ásgerður fulltrúi skólastjóra sagði frá því að skólastjórar hafa áhyggjur af niðurskurði í skólunum. Mikið hefur verið um langtímaveikindi starfsmanna í skólunum sem þarf að leysa með tilheyrandi kostnaði. Óvissuástand í skólamálum er orðið mjög erfitt fyrir starfsfólk skólanna.

Rætt um gjaldskrár mötuneyta grunnskóla. Fræðslustjóra falið að leggja fram sundurliðun á kostnaði við mötuneyti í grunnskólum sveitarfélagsins á næsta fundi fræðslunefndar.

Theodóra fulltrúi Tónlistarskólans sagði frá því að kennarar hafa áhyggjur af niðurskurði í Tónlistarskólanum og að með minnkandi vinnu sé hætta á að skólinn tapi hæfu tónlistarfólki. Hún  lýsti yfir áhyggjum af húsnæði Tónlistarskólans. Hún ræddi um tillögu sem fram kom í janúar um að Tónlistarskólinn og Grunnskólinn í Borgarnesi verði sameinaðir og lýsti áhyggjum af því.

Rætt um starfsáætlanir skólanna.

 

3.        Fjárhagsáætlun 2010

Fræðslustjóri kynnti fjárhagsáætlun fræðslumála og framkvæmdaáætlun ársins 2010.

 

4.        Skóladagatöl 2010-2011

Fjöldi kennsludaga í grunnskólum verði 180 eins og lög kveða á um. Fræðslunefnd leggur áherslu á að skóladagatöl verði samræmd milli skóla með tilliti til starfsdaga.

Sumarlokun leikskóla verði frá og með 1. júlí til og með 4. ágúst 2010.

 

5.        Úttektir á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla

Rætt um úttektir á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla, en tveir af grunnskólum Borgarbyggðar lentu í úttekt á síðast ári. Rætt um stöðuna í skólunum og úrbætur.

 

6.        Erindi frá foreldri leikskólabarns

Lagt fram erindi frá foreldri leikskólabarns um opnunartíma leikskólanna. Fræðslustjóra falið að taka saman gögn um málið og ræða við leikskólastjóra.

 

7.        Framlögð mál

a.       Tilkynning frá menntamálaráðuneytinu um fyrirkomulag innritunar nýnema í framhaldsskóla.

  1. Tilkynning frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2010. Fræðslustjóra falið að skrifa ráðuneytinu bréf og minna á að þessir dagar stangist á við réttardaga.
  2. Bréf frá skólamálafulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga um dag leikskólans. Theodóra minnti á að dagur tónlistarskólans er síðasta laugardag í febrúar ár hvert, sem að þessu sinni er 27. febrúar.
  3. Yfirlit yfir útgáfu nýrra reglugerða í fræðslumálum.

 

 

Áheyrnarfulltrúar viku af fundi klukkan 17:30.

 

8.        Styrkbeiðni 4xGB

Farið yfir styrkbeiðni frá Samtökum foreldrafélaga grunnskóla Borgarbyggðar. Fræðslunefnd samþykkir að veita 150.000 krónu styrk, enda verði tryggt að hluti upphæðarinnar renni beint til foreldrafélaga grunnskólanna.

 

9.        Reglur um stuðning til fjarnáms

Fræðslunefnd leggur til að reglur um stuðning til fjarnáms starfsmanna leik- og grunnskóla Borgarbyggðar verði afnumdar.

 

10.    Skýrsla um skólamál

Rætt um þá vinnu sem fram hefur farið frá sumri 2009 um hagræðingu í skólamálum. Nefndin samþykkir að tekin verði saman í skýrslu þau gögn sem unnin hafa verið, sem  geti nýst við frekari stefnumótun í skólamálum.

 

11.    Eftirlit með fjárhagsáætlun

Rætt um eftirlit með fjárhagsáætlunum stofnana. Stefnt að því að bjóða fjármálastjóra á næsta fund nefndarinnar til að fara yfir rekstrarstöðu einstakra stofnana.

Rætt um framsetningu starfsáætlana. Fræðslunefnd leggur áherslu á að starfsáætlanir séu vel unnar og í samræmi við fjárhagsáætlun.

 

12.    Önnur mál

Rætt um fyrirkomulag útboðs skólaaksturs.

 

 

Fleira ekki gert. 

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

 

Fundi slitið kl. 18:30.

 



Til baka